Zombie Lake (Le Lac des morts vivants) [*]

Einnig þekkt sem: The Lake of the living dead; Zombies Lake
Frönsk
Lengd: 84 mín
Leikstjóri: Jean Rolin
Aðalhlutverk:
Howard Vernon .... Bæjarstjórinn
Pierre-Marie Escourrou .... Þýskur hermaður
Anouchka .... Helena
Antonio Mayans .... Morane

Vá! Vávává! Þetta er algerlega ein versta b-mynd sem ég hef nokkru sinni séð! Plottið er þannig að í seinni heimstyrjöldinni drepa nokkrir andspyrnumenn þýska hermenn og til að þýski herinn hefni sín ekki á þeim, henda þeir líkunum í vatnið við bæinn. Nokkrum árum síðar vakna svo hermennirnir og fara að drepa fólkið í bænum.

Inn í þetta fléttast svo (eða á að fléttast) saga um einn þýska hermanninn sem bjargar franskri stúlku, þau verða ástafangin og hún eignast barn. Þegar hermennirnir vakna fer hann að heimsækja hana og lætur hana fá hálsmen sem mamma hennar átti. Manni hlýnar um hjartarætur.

Þessi mynd er léleg út í gegn. Förðunin er hryllingur, leikurinn verri, enska döbbið er alger martröð og plottið gengur engan vegin. Þrátt fyrir að eiga að gerast nokkrum árum eftir seinni heimstyrjöldina sést að myndin er tekin á áttunda áratugnum, tíska og bílar eru frá þeim tíma.

Fáið ykkur nokkra bjóra og hafið gaman af þessari mynd... þetta er priceless!

Nauðsynlegt bjórmagn: 5 flöskur

-J