Zombie Island Massacre [**] (fáanleg í Laugarásvideo)
Með þessum titli bjóst ég nú við meiri B-mynd, en þetta er bara tiltölulega
venjuleg action/horror mynd, sem er óvenjulegt fyrir Troma myndir. Klassíska
klysjan með hóp af venjulegu fólki sem ratar í einhvern horror, og einn og
einn úr hópnum er drepinn. Ljótasta og leiðinlegasta fólkið náttúrulega fyrst
eins og alltaf. Skítsæmileg mynd, en getur valla flokkast undir raunverulega cult
mynd, þrátt fyrir villandi titil og hulstur
-Rökkvi
|
|
|
|