Týpísk blogg serían:

Kæru lesendur. Það getur verið tímafrekt að lesa blogg. Margir bloggarar blogga á hverjum degi, jafnvel mörgum sinnum. Týpísk blogg serían mín leysir þetta tímavandamál þeirra sem vilja kynna sér blogg hinna ýmsu bloggara. Týpísk blogg súmmerar nefnilega upp allt sem þessi bloggari hefur að segja, þannig að ef þú lest það, þarftu aldrei aftur að lesa bloggið hans/hennar.

Zeranico.com

Hæ, ég kalla mig Zeranico, af því mér finnst það vera svoa kúl, ofurhetjulegt nafn, og af því að ég þori ekki alveg að blogga undir réttu nafni heldur (einhver gæti lamið mig eða jafnvel verra, komist að því að ég heiti Pétur Óskarsson og er 31 árs).

Bla, bla, bla, bla, bla, bla, bla, bla, bla, bla, bla, bla, bla, bla, bla, bla, bla, bla, bla, bla, bla, bla, bla, bla, bla, bla, bla, bla, bla, bla, bla, bla, bla, bla, bla, bla, bla, bla, bla, bla, bla, bla, bla, bla, bla, bla, bla, bla, bla, bla, bla, bla

Þið eruð kannski að velta því fyrir ykkur af hverju ég hafi skrifað bla, bla, bla svona oft hérna fyrir ofan. Það er vegna þess að ég hef alltaf trúað því að blogg gangi út á það að fylla upp í skjápláss lesandans með texta. Hvort hann inniheldur eitthvað er algert aukaatriði. Ef ég blogga bara nógu mikið, þá hlýt ég nefnilega að vera bloggkóngur Íslands og fá ókeypis síma frá ogVodafone, eða a.m.k. kexpakka frá Frón hf

Ég hef líka rosalega gaman af því að kommenta í allar gestabækur á öllum vinsælu íslensku síðunum, undir zeranico nafninu, og skilja eftir URL-ið á síðuna mína, í von um að einher komi og skoði hana og ég fái athygli.

Nú ætla ég að ljúka þessu bloggi með því að segja brandarann minn, þennan um að Noregur sé öxulveldi hins illa í heiminum og plani heimsyfirráð. Ég veit ég er kannski búinn að segja þennan brandara ansi oft. Málið var að það voru rosalega fáir sem hlógu að honum fyrst þegar ég sagði hann, og ég vil að margir hlægi að honum. Þess vegna segi ég hann eins oft og ég get, því að ef að bara einn hlær í hvert skipti, endar á að alveg ógeðslega margir verða búnir að hlægja að þessu. Þá hlýtur það að þýða að ég sé fyndinn.