WWF Supertape '92 [***] (til í Laugarásvideo)

Lengd: ca 135 min

Þetta er spóla frá því í gamla daga. Þarna erum við ennþá með fáránlega karaktera og enn fáránlegri búninga. Wreslerarnir neituðu oft á tíðum að gera nokkuð flott vegna þess að þá gætu þeir meitt sig (well this IS wresling you fuck!). Núna er öldin önnur, allavega í WWF. Núna eru high risk brögð orðin að normi og allir eru að keppat við að vera flottari, fyndnari og hættulegri en næsti maður. Það eru samt nokkur atriði á þessari spólu sem er vert að skoða. Ég ætla að fara í gegnum alla spóluna slag fyrir slag.

Slagur 1
Hér börðust:
Jim "The Anvil" Neidhart
Big Boss Man
The Legion of Doom
Á móti:
The Nasty Boys
Earthquake
The Mountie

       Þetta er bara satt að segja ekkert sérlega góður slagur. Hann er lengi að byrja og það er eins og þeir þori ekki að gera rassgat. Ég get sagt með nákvæmlega engri samvisku að slagirnir hjá Fjölbragðaglímufélagi Íslands eru allir betri. Loka hnykkurinn er samt allt í lagi, þá sjúm við smá action. Samt ekkert spes.
** (af fimm mögulegum)

       Á eftir þessu sjúm við ástæðuna af hverju mörgum finnst wresling asnalegt. Þetta er nokkurs konar viðtal við wreslerinn I.R.S. eða Irwin R. Scheister. Og getiði hvað hann á að vera: nú skattainnheimtumaður! ÚH! SCARY STUFF!! Hann segir manni hvað á að telja fram: framlög til kirkjunnar, peningana sem þú fékkst úr bílskúrssölunni og zzzzzz Þetta leiðir okkur samt beint í næsta slag...

Slagur 2
Hér börðust:
Bret "Hitman" Hart vs I.R.S
       Ég hlakkaði til að sjá þennan slag. Bret Hart var alltaf í uppáhaldi hjá mér, hann var (eins og ónefnt íslenskt wresling tag team) alltaf í bleiku og svörtu og gat verið cool þannig. Ma man! Svo kunni hann líka að wresla og ég hafði heyrt að IRS gæti líka wreslað þannig að slagurinn lofaði góðu. Henn er samt lengi að byrja og byrjar á headlocki sem tekur ENDALAUSANN tíma. Bret Hart tekur samt góða rispu undir lokin og gerir nokkur flott brögð en IRS svindlar og er dæmdur úr leik (DQ).
**1/2 (af fimm mögulegum)

       Þá kemur e-ð viðtal við wresler sem margir þekkja: Undertaker. Maðurinn var alltaf í svörtum frakka þegar hann kom í hringinn og var mjög drungalegur karakter. Þetta viðtal leiðir okkur svo í slag nr3

Slagur 3
Hér börðust:
Undertaker vs Greg "The Hammer" Valentine
       Æi, The Hammer er orðinn gamall og slappur og það litla sem gerist í slagnum er að Undertaker kyrkir hann! Mjög hægur slagur semsagt. Koma samt tvö flott brögð og þá er allt í einu allt búið! Crap!
*1/2 (af fimm mögulegum)

       Svo heldur Undertaker viðtalið áfram sem leiðir okkur í næsta slag.

Slagur 4
Hér börðust:
Undertaker vs Jimmy "The Superfly" Snuka
       Jimmy Snuka var góður á sínum yngri árum en heldur farinn að láta á sjá þarna. Í þessum slag fáum við samt að sjá mennina hreyfast sem sýnir okkur það að það er ekki nóg að sá sem geri brögðin þurfi að vera góður hinn þarf að geta selt þau líka og það getur Snuka. Slagurinn er eiginlega bara eins og sá á undan nema bara aðeins flottari! Snuka fleygir sér til og frá og Undertaker líka þannig að þessi er bara ekki sem verstur. Soldið slow eins og allir Undertaker slagir en samt OK
**1/2 (af fimm mögulegum)

Slagur 5
Hér börðust:
Bret "Hitman" Hart (IC champion) vs Skinner
       Þarna fáum við að sjá væmni andskotans! Bret Hart gaf alltaf sólgleraugun sín í byrjun slagsins og þarna fær e-r gelgja þau og náttúrulega öskrar úr sér líftóruna! Ffffll-ott!! Þessi slagur hefur samt ágætt pace, mennirnir halda áfram að wresla en labba ekki út um allan hring másandi og blásandi eins og sést í sumum slögum. En þarna kemur í ljós að kallarnir í gamla daga voru frekar takmarkaðir. Brögðin sem the Hitman gerir eru þau sömu og hann gerði á IRS og meira segja í sömu röð! Samt er þetta betri slagur.
**1/2 (af fimm mögulegum)

       Núna fer að hitna í kolunum því næst er viðtal við Jake "The Snake" Roberts. Þessi wresler kom alltaf með snák í hringinn og lét ofaná andstæðingana þegar hann var búinn að vinna þá. Þetta ver ekkert smá flikki, risa kyrkislanga! Plottið er allavega þannig að hann hafði ráðist inn í brúðkaupið hjá Macho Man og konunni hans, látið cobra slönguna sína bíta Macho (það var gert í alvöru nema eiturkirtlarnir voru teknir úr slöngunni!) og margt fleira. Núna ætlaði Macho að berja hann og gerir það alveg ljóst í viðtalinu sem fylgir á eftir. Þetta leiðir okkur í næsta slag...

Slagur 6
Hér börðust:
Macho Man Randy Savage vs Jake "The Snake" Roberts
       Svona eiga slagir að vera! Áður en þeir koma í hringinn er Macho búinn að berja Jake í köku! Þeir ráðast á hvorn annann miskunarlaust og stoppa eiginlega ekkert sem gerir þennan slag mjög góðann. Slagurinn endar á að Macho gerir aðalbragðið sitt "The Flying Elbow Smash" beint á Jake. Þá halda margir að allt sé búið, en aldeilis ekki! Þá heldur Macho áfram að buffa Jake (munið að Macho er GÓÐI GÆINN!) en Jake kemur til baka og buffar hann! Þá kemur kona Macho inn á sviðið og grátbiður Jake að hætta sem endar með því að Jake lemur hana! Þetta er besta sápuópera sem hægt er að hugsa sér! Ofbeldi, kvenmannsgrátur og meira ofbeldi! YES! Viðtalið við Jake eftir slaginn er svo alger SNILLD! Hann er barasta besti sicko sem komið hefur í wresling! Hlustið á hann, þetta er snilld!
**** (af fimm mögulegum)

Slagur 7
Hér börðust:
The Warlord vs The British Bulldog
       Æi! Það er eins og það sé verið að reyna að svæfa mann hérna og sýna manni um leið að svona tröll geti ekki gert neitt í wresling! Þessir menn eru svo miklir massar að þeir geta varla hreyft sig! Það er langt á milli bragða en það verður samt að viðurkennast að þegar þau koma eru þau í lagi. Samt ekkert sérlega gott, ég bendi frekar á slag okkar frá Lagningadögum 2000 í MH.
** (af fimm mögulegum)

Slagur 8
Hér börðust:
Million Dollar Man & Repo Man vs Virgil & Matador
       Það er smá saga bak við þennan slag. Virgil (sá svarti) var einusinni þjónninn hjá Million Dollar Man en braust undan honum. Þetta er semsagt slagur um stolt. Ég bjóst nú ekki við miklu en þetta kom mér verulega á óvart! Million Dollar Man gerir ekki mörg brögð en hann gerir þau vel og hann er æðislegur í að selja brögð á ýktan og jah wresling legann hátt. Matador er mjög góður flyer og gerir nokkur þannig brögð. Síðan höfum við allar klisjurnar úr wresling þarna: Tveir menn úr sitthvoru liðinu að rembast við að komast í sitt horn, maður laminn og kemur allt í einu til baka. Þetta er líka hraður slagur og lítið um pásur. Very Good, mæli með þessum
*** (af fimm mögulegum)

Slagur 9
Hér börðust:
Undertaker (World Champ) vs Hulk Hogan
       Ok, byrjum á einu: 98% af slögum Hogans sökka feitann lók og ætti að banna af wresling spólum. Þegar hann er svo settur með Undertaker sem er svo slow að maður þarf að setja á fast forward til að hafa gaman af honum er ekki von á góðu! Svo bætir ekki úr skák að Hogan hefur aldrei getað selt brögð. Sleppið þessum bara nema þið viljið eyðileggja hugmyndir ykkar um goðin úr æsku
*1/2 (af fimm mögulegum)

Lokaniðurstaða:
*** (af fimm mögulegum) Þessir þrír slagir eru bara það eftirminnilegir að það er þess virði að taka spóluna. Svo er Call of the action alger snilld!

-Jón Grétar