Wizard of the lost kingdom [0] (til í Laugarásvideo)

Hvað getur maður sagt um mynd sem maður var að gefa núll stjörnur. Segir það ekki bara allt?

Jæja, fyrir þá sem samt vilja meiri upplýsingar þá fjallar þessi mynd um illa leikna menn sem annaðhvort sveifla bognandi gúmmísverðum eða skjóta ljótum teiknuðum specialeffektum úr höndunum. Þessi mynd er eitthvað af því vondasta og versta sem fyrirfinnst. Þegar ég hætti að horfa á þetta þá var lítill strákur að vesenast í einhverjum skógi með ofvaxna tuskubangsanum sínum og spandexhomma. Þessi tuskubrúðubangsi var eitthvað sem Helga Stephensen hefði skammast sín fyrir að hafa búið til og ég þori að veðja að ekki einu sinni Páll Óskar hefði viljað ríða spandexhommanum.

Það alversta við þessa mynd var hins vegar að hún tók sig líka alvarlega, en það er álíka eins og að þurfa að hlusta á Ron Jeremy tala um hvað leikhæfileikar hans hefðu komið honum langt, eða Lalla Johns segjast vera góð fyrirmynd í lífinu. Það er hins vegar eitthvað sem við þurfum væntanlega aldrei að heyra, og við þurfum heldur ekki að horfa á þessa ömurlegu mynd. Þetta sagði ég líka við sjálfan mig þegar ég slökkti á henni eftir 10 mínútur.

- Rökkvi