The Wizard of gore [0] (fáanleg á Laugarásvideo)
Þetta er allra ömurlegasta myndin sem ég hef fjallað um til þessa.
Hún er langdregin með óteljandi lúppum og lélegri tónlist. Það tekur
því kannski ekki að taka það fram að hún er illa leikin líka og asnaleg
að öllu öðru leiti. Það versta er samt að myndin hefur engan alveru endi,
heldur lúppar hún bara og byrjar aftur á byrjuninni eftir asnalegt og
leiðinlegt lokaatriði.
Og já, ég gleymdi kannski að segja um hvað myndin er. Hún er um töframann
sem hefur það fyrir töfrabrögð að limlesta konur, þær virðast vera í lagi
eftirá, en síðan detta þær alltaf í sundur nokkrum klukkutímum seinna. En
ég held að öllum megi svosem vera sama um hvað þessi mynd fjallar, því endilega
hlífið ykkur við að horfa á svona 10-15 lúpp af þessu rugli.
-Rökkvi
|
|
|
|