Van Helsing [0]

Ég fór að sjá Van Helsing í gærkvöldi. Bjóst ekki við miklu, annað hvort skemmtilegu campy fun eins og Mummy myndirnar eða over the top goth eins og Underworld. En nei, það var hvorugt. Ég held satt að segja að þetta sé lélegasta vampýru/zombie/varúlfamynd sem ég hef nokkru sinni séð. Þetta er meira að segja verra en Chopper chicks in Zombietown, Frankenhooker og Re-animator.

Nú ætla ég að skíta yfir myndina og þá þarf ég að segja frá ýmsu um myndina. Ef þið viljið ekki vita hvað gerist og hvernig hún endar, hættið þá að lesa.

Myndin byrjar ágætlega. Dr. Frankenstein að búa til skrýmslið og brjálaður lýðurinn að brjótast inn í kastalann hjá honum. Það sem hins vegar gerir þetta áhugavert að Drakúla er inni hjá honum og hefur einhvern áhuga á skrýmslinu og hvernig það er búið til. Hins vegar er Richard Roxburgh svo hrikalega over the top að það er ekki annað hægt að en skella upp úr þegar hann byrjar að labba á veggjunum og loftinu til að hræða doktorinn góða. Þegar helvítis skrýmslið vaknar síðan byrja ósköpin fyrir alvöru. Það er eins og leikarinn hafi verið fenginn beint úr Sólheimaleikhúshópnum! Hann er fáránlega lélegur leikari og hvert skipti sem hann talar hljómar eins og einhverskonar grín úr mynd eins og Scary Movie. Þegar helvítið loksins hrapar ofan í brennandi mylluna sjáum við brúðir Drakúla. Þær eru bara vondar. Það er erfitt að lýsa því hversu rosalega illa leiknar og over the top þær eru látnar vera. Sífellt hvæsandi, baðandi höndunum út í loftið og á allan hátt að líta illa út. Að horfa á þær var eins og að horfa á lélegan nútímadans, þar sem dansarinn er að reyna að vera voðalega dramatískur með því að veifa höndunum í sífellu og vera mis asnalegur í framan. Og þetta hélt áfram alla helvítis myndina!

Síðan er klippt yfir á Van Helsing að buffa Mr. Hyde í París. Ég bara skil ekki af hverju verið var að eyða peningum í þetta atriði. Það er of langt, asnalegt og hefði vel verið hægt að kynna Van Helsing til sögunnar á annan hátt. Frekar hefði Sommers (leikstjórinn) átt að eyða þessum peningum í að gera landslagið aðeins raunverulegra, mér fannst alltaf eins og að ég væri á kynningu hjá tölvuleikjaframleiðanda.

Því næst fer Van Helsing í leyniregluna sína í Vatíkaninu. Þegar hann gengur inn í Vatíkanið var ekki einu sinni haft fyrir því að láta hann bara labba inn í risastóra gamla kirkju. Nei, hann er GREINILEGA að labba í blue screen og kirkjan er svo innilega tölvugerð. Þá fer hann niður í kjallarann þar sem vopnasmiðurinn er. Sá fer að skamma Bond.. ég meina Van Helsing fyrir að skemma alltaf vopnin og sýna honum hitt og þetta áhugavert. Þetta var það mesta Bond ripp off sem ég hef séð! Ömurlegt í alla staði.

Eftir það kemur smá pása í vondheitum, svona í allavega 2 mínútur. Þá hittum við Anna og Velkan Valerius sem eru síðustu afkomendur einhvers krumpaðs karls sem ætlaði að drepa Drakúla og ekki hleypa sínu fólki inn í himnaríki fyrr en það tækist hjá honum eða afkomendum sínum. Kate Beckinsdale leikur systurina og er helvíti sexe í outfittinu sínu en er látin tala með asnalegum hreim (sem á að vera Transilvanískur örugglega) sem er bara eins og að hlusta á rússneska klámmyndastjörnu reyna að tjá sig. Bróðirinn hefði verið rekinn úr Zombie Lake, hann leikur svo illa.

Núna er ég bara búinn að fara yfir fyrstu tíu mínúturnar en samt búinn að drita endalaust á myndina. Svona heldur þetta áfram ð 132 mínútur! 132! Bara til að súmmera restina upp: Samtölin eru hallærisleg og asnaleg. Við eigum ekki að fatta neitt sjálf í þessari mynd (svona eins og í LOTR), karakterarnir eru sífellt að troða ofaní okkur staðreyndum. Mér fannst stundum eins og David Attenborough myndi koma út úr skóginum "The werewolf is a TREMENDOUS creature, with AWSOME abilities...." Þið skiljið hvað ég er að fara. Ekki nóg með það heldur á liðið bara að hendast gegnum hálfa Rúmeníu ð hálfum degi á hestbaki og svo til baka aftur á enn styttri tíma! Einhvernveginn tekst þeim líka að koma boðum til Rómar og TILBAKA á nokkrum klukkutímum. Svo þegar kemur að lokabardaganum á milli Van Helsing og Drakúla fannst mér bara að vantaði lyklaborðið á tölvunni svo ég gæti stjórnað skrýmslunum. Þar kemur líka enn eitt svartholið í plottinu. Það eina sem getur drepið Drakúla er nefnilega varúlfur og getið hver var bitinn af varúlfi nokkrum tímum áður? Nú auðvitað Van Helsing! Heppilegt. Ekki nóg með að þá hverfi Jackman af skjánum (hann er nokkurn veginn sá eini sem er í meðallagi í þessari mynd) og í staðinn komi CGI úlfur dauðans heldur eru Vampýrur í þessari mynd aðeins öðruvísi en í öllum öðrum myndum. Þær umbreytast í einhver rosalega stór skrýmsli sem líkjast ekkert manninum sem þær eru "í raun". Þannig að við losnum við Roxburgh og Jackman og í staðinn fyrir að sjá tvær persónur úr myndinni berjast sjáum við ofurúlfinn og ofurvampýruna kútveltast í rannsóknarstofu dr. Frankenstein. Jibbý-fokking dú!

Ég held að þessi mynd sé það sem kemur út þegar ofur Nexus nördar sem eru að reyna að vera hnakkar gera horror/action mynd sem á að vera dramatísk og "dimm".

Sem sagt, ég hvet alla til að rippa þessari mynd á Kazaa eða DC++ frekar en að borga heilar 800 krónur fyrir að láta sér leiðast í 132 mínútur!

Af 5 stjörnum mögulegum fær þessi mynd 0
Nauðsynlegt bjórmagn... MIKIÐ!

- Jón Grétar