Up! [*1/2] (fáanleg á Laugarásvideo)
Russ Meyer
Vissulega stendur þessi mynd fyrir sínu í Russ Meyer stíl. Plottið er líka magnað, ef
maður hefur það í gegnum myndina til að sjá það.
Byrjar á því að þýskur
Hitler lookalike, sem býr í litlum redneck smábæ, er að leika sér niðri í dýflissu með
kynlífsþrælum sínum.
Án þess að
maður skilji neitt samhengi við það í sjálfu sér, fjallar myndin síðan um bosmamikla konu
sem villist inn í sama smábæ og fer alsber að taka einn af lúðunum þar í karatebrögð.
Hún hittir síðan redneck lögguna í bænum, sem yfirleitt tekur allar sektir út í blíðu.
Þess vegna er allt í lagi að hún drepi kannski svona eins og einn sveitalubba. Síðan
sveiflar kvunsa þessi túttunum á sér í gegnum þennan litla bæ, og afgang myndarinnar,
alveg fram í hinn óvænta endi.
-Rökkvi
|
|
|
|