I Tvillingernes tegn [***½] (til í Laugarásvideo)
Hann Ole Søltoft stendur nú alltaf fyrir sínu. Í þessari mynd leikur hann kvennabósa
og forstjóra plötufyrirtækis á fjórða áratugnum. Þarna eru líka margir virtir danskir
leikarar úr Matador þáttunum og Olsen bandet myndunum, því að fáir eru þeir Danir, sem
ekki myndu sjá heiður sinn í að leika í góðri klámmynd. Allavegana ef hún væri eftir
snillinginn Ole Söltoft!
Ole kallinn þarf nú að fá aðal söngstjörnu Svíþjóðar til að skrifa undir samning við sig.
Verst er bara að skúrkurinn hjá Onofon records, samkeppnis aðila hans, falast eftir sömu
konu og er tilbúinn til að beita hinum verstu fantabrögðum til að fá sínu fram.
Ole deyr hins vegar aldrei ráðalaus og með óviðjafnanlegum sjarma sínum, og hjálp gleðipía
sinna, er hann staðráðinn í að fá sínu fram, og kannski draga einkaritara keppinautar síns
á tálar í leiðinni.
Alveg í stílnum - merkjamyndirnar klikka aldrei!
-Rökkvi
|