The Toxic Avenger 2 [***] (fáanleg á Laugarásvideo)
Framhaldið af hinni klassísku cult-mynd the Toxic Avenger. Nú er því miður
voðalega lítið fyrir grey Melvin að gera heima í bænum sínum Traumaville, því
að eftir að hann breyttist í the Toxic Avenger er hann búinn að stúta öllum
vonduköllunum sem bjuggu þar. Aumingja Toxie er orðinn þunglyndur og finnst hann
vera einskis nýtur. Til að reyna að leysa úr sálrænum flækjum sínum fer Toxie til
Japan til að leita að pabba sínum, sem stakk af þegar Melvin var krakki.
Og ekki getur geislavirkt vöðvafjall farið til Japan án þess að berjast við nokkrar
ninjur og súmóglímumenn!
-Rökkvi
|
|
|
|