Torrente [**1/2] (fæst í Laugarásvideo)
Þessi mynd fjallar um einhvern mesta viðbjóð sem fyrirfinnst í mannslíki -
Torrente. Torrente er feitur, skítugur, sóðalegur, þjófóttur og pervertískur
Spánverji sem "heldur uppi lögum" í hverfinu sínu, meðan gamall faðir hans heldur
honum uppi með betli. Fyrir tilviljun rekst Torrente á risastórt glæpamál sem
gæti gert hann frægan ef hann næði að leysa það. Þar fáum við síðan að fylgjast með
hinum heimska armi lagana í verki.
-Rökkvi
|
|
|
|