Return of the Killer Tomatoes [***] (fáanleg í Laugarásvideo)
Sjáið hvað George Clooney þurfti að leggjast lágt á leið sinni til frægðar og frama!
Þessi mynd er framhald af Attack of the Killer tomatoes. Nú er brjálaður prófessor
búinn að finna leið til að breyta tómötum í fólk og ætlar að taka yfir heiminn, eins
og allir brjálaðir prófessorar sem ég hef séð í bíómyndum hingað til.
Þessi mynd er náttúrulega ekkert nálægt því eins klassísk og sú fyrri, en hún gengur
samt talsvert hraðar, og rennur mun betur í gegn. Mörg atriði eru mjög fyndin. Ekki
slæm afþreying. Það er náttúrulega líka snilld að sjá síðhærðan George Clooney leika
aukahlutverk í algerri ruslmynd.
Fleygar setningar úr myndinni: "I can´t believe it, my girlfriend is a tomato!"
-Rökkvi
|
|
|
|