Attack of the killer tomatoes [**1/2] (fáanleg á Laugarásvideo)

Væri hægt að finna betra nafn á B-mynd? Lúði nokkur fær verkefnið að vinna á drápstómötunum ógurlegu. Hann hefur til þess sérsveit sem samanstendur af kafara, rússneskri sundkonu, dulbúningssérfræðingi og fallhlífarsérfræðingi. Það er aðeins eitt leynivopn gegn tómötunum illu, mun hann geta fundið það í tæka tíð?

Fleygar setningar úr myndinni: "Oh my god, it´s Adolf Hitler!" "Somebody please pass me the ketchup,..... oh damn!"

-Rökkvi