Attack of the killer toamtoes

Ég fór á Laugarás video að taka mynd og þegar ég leit í rekkann ákvað ég að taka þessa. Þessi mynd fjallar um tómata sem verða morðingjar og ganga um og drepa alla sem verða á vegi þeirra, og svo er sérstök nefnd stofnuð til að ráða niðurlögum þessara tómata.

Þeir sem skipa þennan hóp eru frekar skrautlegir, sem dæmi má nefna þann sem er dulagervissérfræðingurinn sem dulbýr sig sem svartan Adolf Hitler.

Þetta er ágætis mynd og hin fínasta skemmtun.
Ég gef henni *** ½ af 5 mögulegum
GEG