Á lægsta plani: málefnahorn Íslenskrar lágmenningar
Fróðleikshornið: Að hugsa með tippinu
  Sálfræðilegur mismunur á karl og kvenkyninu er alltaf heitt
umræðuefni og þykir sitt hverjum. Mikilvægur þáttur í muninum yfirsést þó mjög mörgum,
en það er sú staðreynd að konur eru með heila - sem þær geta hugsað með, en menn eru með
heila - og tippi, sem þeir geta hvort tveggja notað til að hugsa með.
  Reyndar eins og vitað er um menn, þá geta þeir aðeins einbeitt
sér að einu í einu. Þannig er því miður líka bara hægt að hugsa með öðru líffærinu í
einu. Þetta ætti ekki að koma neinum að óvart. Ekki til dæmis langþreyttum konum sem
árangurslaust hafa reynt með andlegum aðferðum að gera desparate karlmönnum það
skiljanlegt að þær vilji ekkert með þá hafa. Það er nefnilega ekki hægt að koma
skilaboðum til heilans meðan maður hugsar með tippinu.
  Ekki ætti þetta heldur að koma að óvart þeim karlmönnum sem
vakna upp að morgni með ljótustu herfu helvítis við hliðina á sér, forviða á því
"hvað þeir hafi verið að hugsa" kvöldið áður. Það er nokkuð augljóst hvað þeir voru
að hugsa, og hvaða líffæri var að hugsa fyrir þá. Því miður er tippið hins vegar ekki
eins flókið líffæri og heilinn og getur eiginlega bara hugsað eina hugsun - RÍÐA!
  Áhugavert er að skoða anatómíu þessa líffæris nánar, þá
sérstaklega í samanburði við hitt hugsunuarlíffærið - heilann. Eins og allir vita þarf
heilinn á nokkrum nauðsynlegum þáttum að halda til að geta starfað. Heilinn þarf mikið
blóðflæði og súrefni. Þannig er þetta einnig með tippið. Þannig sést líka að tippið
hugsar einna mest þegar blóðflæði til þess er hámarkað.
  Sama má segja um súrefni. Þessi staðreynd hefur löngum verið
þekkt, enda hafa margar þjóðir, eins og til dæmis Arabar og Gyðingar lengi stundað umskurð
á karlmönnum, til að það lofti nú soldið betur um vininn og súrefnisþörf hans sé þannig
fullnægt. Þetta hefur þó að vissu leyti einnig haft sín bakslög, enda sést líka að Arabar
eru svo graðir að þeir neyðast til að láta konurnar sínar ganga með blæjur fyrir andlitunum
og umvafnar lökum. Annars myndu þeir hreinlega tryllast úr físn, eins og þeir gera
ævinlega þegar þeir heimsækja vesturlönd.
  Umskurðurinn virðist ekki hafa jafn mikil áhrif á Gyðinga, en það
er líka vitað mál að Gyðingar hugsa ekki um neitt annað en peninga, þannig að aðrar
hugsanir, svo sem innlegg frá tippinu, kemst illa að.
  Einnig hefur löngum verið vitað að Ítalir hugsi mjög svo mikið
með tippinu. Spyrjið bara kvenfólk (sérstaklega ljóshært) sem hefur ferðast til Ítalíu.
Þetta er hins vegar ekki af því að Ítalir séu umskornir - og alls ekki af því að þeir hafi
eitthvað stærri tippi en aðrir. Nei - orsökin er einfaldlega sú að Ítalir eru með mjög
einfalda og vanþróaða heila, sem krefjast lítils blóðflæðis og súrefnis. Þessi staðreynd
hefur blast við í gegnum mannkynssöguna. Það eru til dæmis engar tilviljanir af hverju
Ítalir hafa ekki unnið svo mikið sem eitt einasta stríð - ekki einu sinni nýlendustríð -
og það að síðan frá stríðslokum hefur verið að meðaltali meira en ein ríkisstjórn á Ítalíu
á ári. Vegna smæðar og einfaldleika heila Ítala hefur hefur tippið litla samkeppni um
blóðflæði og aðra þætti og getur þar af leiðandi verið mun vikara en hjá venjulegum
mönnum.
  Af þessu ætti ýmislegt að vera ljóst og ætti nú að vera hægt að
takast á við hin ýmsu vandamál á nýjan hátt. Ef blóðflæði til tippis er of mikið fær
heilinn ekkert blóð, og menn geta ekki notað hann til að hugsa. Menn ættu því ekki að
stunda nektarstaði, þar sem hugsanaleysi þeirra getur (og hefur oft) kostað þá
viðskiptavitið og leytt til þess að þeir hafi farið út í mjög óskynsamlegar fjárfestingar.
  Konur ættu einning að skilja að það þýðir ekki að segja gröðum
karlmanni að fara burt og það að þær vilji ekki vera með honum. Það er tippið sem er að
hugsa fyrir þá, og þarf því að beina röksemdum til þess beint. Tippið er ekki líffæri
sem er til þess gert að skilja talað mál eða önnur andleg tákn. Það er þó mjög næmt fyrir
beinum aflfræðilegum áreitum, sem oft má beita á það sem röksemdafærslu. Ef tippið er til
dæmis kramið mjög fast, heftir það blóðrásina til þess, og heilinn fer aftur að geta
hugsað eitthvað. Þetta skyldi alltaf haft í huga í samskiptum við graða og uppáþrengjandi
karlmenn.
-Rökkvi
|
|
|
|