Thumb Wars 1999 [****½] (fáanleg í Laugarásvideo)

Leikstjóri: Steve Oedekerk
Lengd: 26 mín

Þetta er ein fyndnasta mynd sem ég hef séð í langann tíma. Myndin er Star Wars parody þar sem allar persónur eru leiknar með puttabrúðum. Þessi mynd tekur Star Wars algerlega fyrir og ég þarf þess vegna ekkert að fara nákvæmlega í plottið á henni. Black Helmet Man er vondi kallinn. Í staðinn fyrir að tala um force er talað um thumb. Ekkert evil side hér bara tha nail side of the thumb. Allir brandararnir ganga út á að gera grín að hvað Star Wars er í raun asnalegt fyrirbæri: "I am Oobedoob Scobydoob Benubi, the man with the silliest sounding name in the universe" "...they have constructed a big weapon thing that can blow things up" Brandararnir eru endalausir og maður þarf að hafa eyrun opin til að ná þeim öllum.

Þetta er ekki bara fyrir forfallna Star Wars nörda því allt sem er talað um í myndinni er e-ð sem allis geta munað eftir ef þeir hafa séð myndina einu sinni. Frábær!
**** ½
Nauðsynlegt bjórmagn: bara einn til málamynda

-Jón Grétar