Surf Nazis must die [*] (fáanleg á Laugarásvideo)

Virkilega aumkunarvert léleg mynd þótt titillinn sé fyndinn. Myndin gerist í framtíðinni í LA, þar sem glæpagengi nokkur leika lausum hala. Fremstir í flokki þeirra eru sörfnasistarnir ógurlegu. Nasistarnir eiga í útistöðum við nokkur önnur gengi þarna á ströndinni (sem öll eiga það eina afrek að vera hommalegri en nasistarnir, sem er mjög harðsótt mál). Erfiðasti andstæðingur nasistanna reynist þó vera svört kellingarbredda, sem verður ansi fúl eftir að nasistarnir drepa son hennar Leroy (frumlegt nafn). Það sem einkum veldur því hvað kellan er hættuleg er það að hún fattar nefnilega að nota vopn eins og byssur og sprengjur, á meðan öll glæpagengin berjast bara með hnífum og öðru eldhússkrani.

-Rökkvi