Hideous sun demon [**] (til í Laugarásvideo)
Ein af þessum eldgömlu, svarthvítu Killer B´s myndum. Þessi er hins vegar ekki
jafn slæm og flestar hinar sem ganga undir þeim titli.
Vísindamaður sem verður fyrir óhóflegri geislavirkni fær þann leiðinlega kvilla
að breytast alltaf í eðlukall ef sólin skín á hann. Leiður á lífinu leitar hann
því út í næturlífið, en hvimleiðir atburðir verða oftar en ekki til þess að hann nær
ekki heim fyrir sólarupprás - og þá gengur ógurlega eðluskrímslið berserksgang.
Einhvernveginn er þetta ekkert svo slæm mynd. Söguþráðurinn og kannski líka leikurinn
ekki nærri eins vond eins og búast má við af Killer B´s mynd. Alveg hægt að hafa gaman
af að horfa á.
-Rökkvi
|
|
|
|