Street trash [**1/2] (fáanleg í Laugarásvideo)

Frekar furðuleg mynd, sem hefur engan eiginlegan söguþráð. Fjallar um róna og undirmálsfólk í New York og er með subbulegu splatter ívafi til yndisauka. Ágætis afþreyging ef manni finnst gaman að sjá fólk bráðna í gular klessur, breytast í grænt slím, eða tútna út af eiturvessum og springa síðan í tætlur! Þarna er líka afar furðulegt atriði sem hefur með afskorinn getnaðarlim að gera. Semsagt: subb og viðbjóður, en samt á svona frekar vingjarnlegan og líbó hátt þannig að maður getur ennþá hlegið að því.

-Rökkvi