Starship troopers [****] (fáanleg í Laugarásvideo)

Þetta er sannkölluð b-mynd og með þeim betri sinnar tegundar. Gerist í framtíðinni þar sem mannkynið hefur tekið yfir stóran hluta geimsins. Það eru hins vegar ennþá sólkerfi þar sem skordýrasamfélög eru ríkjandi. Þessi skordýrasamfélög virka sem gáfuð heild og berjast gegn mönnunum. Myndin fjallar um stríðið við þessar pöddur.

Uppbygging myndarinnar er mjög kómísk, sérstaklega þar sem annað slagið eru sýnd áróðursmyndbönd (mjög keimlík þeim sem voru sýnd í seinni heimsstyrjöldinni) um stríðið gegn pöddunum, hvernig menn séu eitthvað miklu heilagari en pöddurnar og hvernig maður eigi að drepa pöddur fyrir mannkynið.

Allt í þessari mynd er mjög kjánlegt og aulalegt, sem gerir áfhorfið bara skemmtilegra. Söguþráðurinn og samræður eru ótrúlega glorified eitthvað, án þess að það sé séns að taka neitt af því alvarlega. Splatterið er líka mikið og gott í þessari mynd og hún er mun grimmilegri en týpísk amerísk action mynd að því leyti að nokkrar af stærri persónunum deyja á mjög subbulegan hátt.

Ef horft er á hana með réttu hugarfari, þá er þetta hin mesta snilld allt í allt. Góð blanda af splatteri, hálfnöktum konum og kómísku veruleikafirrtu bulli, sem allir rétt hugsandi cult aðdánendur ættu að geta fílað.

-Rökkvi