Sorority Babes (in the slimeball bowl-o-rama) [*1/2] (fáanleg í Laugarásvideo)
Ég varð að sjá þessa, ef þá bara út af hulstrinu. Innihaldið - ja, hvað lætur maður
sig ekki hafa í nafni lágmenningar. Fjallar um nokkra unglinga í College í Ameríku sem
eru búin að brjótast inn í keilusal í verslunarmiðstöð. Það fer hins vegar að hitna í
kolunum þegar þau losa um púka nokkurn (imp) sem fer að gera hin ýmsu töfrabrögð og
gjörninga. Grey unglingarnir - ef þau hefðu nú bara haft vit á að spila soldið Dungeons
& Drangons myndu þau vita að imps eru VONDIR. Uss, uss, uss.
-Rökkvi
|
|
|
|