Sorority babes in the slimeball bowl-o-rama [**1/2] (fáanleg í Laugarásvideo)
Þegar ég sá hulstrið ákvað ég að taka þessa, fullt af flottum stelpum hugsaði ég.
Og viti menn aldrei þessu vant hafði ég rétt fyrir mér, þó svo að það fari ekki mikið
fyrir söguþræðinum.
En myndin fjallar um ungar stúlkur sem eru að vígjast í stúlknaklíku, og lokaþrautin er að
brjótast inní verslunarmiðstöð og stela verðlaunagrip úr keilusal.
Nema hvað þegar allt kemur til alls er vont skrímsli inní gripnum og hann gefur krökkunum 3
óskir sem verða svo slæmar, og svo standa ein stelpa og einn strákur eftir.
Það sem heldur myndinni uppi eru stelpurnar sem eru frekar myndarlegar og eitt gott og langt
sturtuatriði J og svo hvað bardagaatriðin í myndinni eru léleg.
Þessi mynd fær ** ½ af 5
-GEG
|
|
|
|