Sømænd på sengekanten [***1/2]

Úr sengekanten seríunni. Fjallar um kvenrembu nokkra sem pikkar upp vélstjóra nafni Georg Hansen sér til afþreyingar. Grey maðurinn fær því miður garnaflækju í öllum látunum og fer á spítala. Til að sýna að konur geti allt sem menn gera, dulbýr hún sig sem Georg og fer á skipið tekur hans stöðu á skipinu hans. Það vill meira segja svo til að kellan þarf ekkert að gera í vinnunni hvort eð er, af því vélstjórarnir gera ekkert þarna nema tefla og lesa klámblöð hvort eð er.

Við fáum líka að kynnast hinni vösku áhöfn þessa skips, raunum þeirra og viðhorfum til lífsins. Þarna er náttúrulega líka hommi um borð í skipinu sem að sjálfsögðu verður ástfanginn af kellu, og þó að skipið komist aldrei til Íslands eins og áhöfnin hafði öll vonað, þá er ekki laust við að þessir dyggu menn rati í alls kyns skemmtileg ævintýri - hvort sem þau eru ókeypis eða þeir verði að borga fyrir þau. Klassískar setningar úr myndinni: "Are you finished?" - "No, I´m Danish." "Og vi skulle lige rejse til Island, hvor der findes masser af flotte piger som vil bolle med mand - fridt."
-Rökkvi