Slave Girls from Beyond Infinity (1987) [****] (til í Laugarásvideo)
Lengd: 71 mín (UK version), 80 mín (USA version)
Litmynd
Leikstjóri: Ken Dixon
Aðalhlutverk: Elizabeth Kaitan .... Daria
Cindy Beal .... Tisa
Don Scribner .... Zed
Brinke Stevens .... Shela
Carl Horner .... Rik
Mér leiddist þannig ég ákvað að fara á uppáhalds vídeóleiguna mína og taka spólu. Ég fór inn í b-mynda rekkann og þá fór ég í gott skap. Þarna blast við mér SLAVE GIRLS FROM BEYOND INFINITY! "Þessi er áhugaverð" Hugsaði ég með mér. Þegar ég skoðaði hulstrið betur sá ég tag-line-ið: Big Movie. Big Production. Big Girls. "OK þetta VERÐ ég að skoða!!!" hugsaði ég og fór heim með þessa brilliant mynd undir hendinni.
Myndin fjallar um Tisu og Dariu sem eru teknar til fanga í þrælageimskip en tekst á e-n ótrúlegan hátt að sleppa. Þær brotlenda á plánetu þar sem Zed ræður ríkjum. Hann er í fyrstu voðalega yndislegur en svo kemur í ljós að hann tekur fólk til fanga bara til að sleppa því í frumskóginn fyrir utan kastalann sinn þar sem hann reynir að veiða það. Það var ekkert sem olli vonbrigðum hér. Sætar gellur á bikiní hlaupandi undan vonda kallinum og vélmennunum hans (annað þeirra er meira að segja með komplexa um allan andskotann). Þetta bara verður ekki mikið betra. Við fáum meira að segja túttuskot af einni gellunni. Stakasta snilld!
**** (af fimm mögulegum)
Nauðsynlegt bjórmagn: 2-3
-Jón Grétar
|
|
|
|