I skyttens tegn [***½] (fáanleg í Laugarásvideo)

Ein af myndunum í dönsku stjörnumerkjasyrpunni. Ole Soltoft er hér aftur mættur sem Agent 69 Jensen, hinn sígraði og seinheppni njósnari hennar hátignar. Nú keppast stórþjóðirnar (þar á meðal Danir he, he) um að ná einhverju leynisjölum sem eru víst voðalega mikilvæg.

Í átökum um þessi skjöl, týnast þau og lenda á einum af farþegum sem fóru með danska spæjaranum í flugvél heim til Danmerkur. Ekki bætir úr skák að yfirmaður dönsku leyniþjónustunnar fer í frí og geðbilaður einstaklingur tekur við af honum.

Nú þurfa Jensen og co. að hafa hraðan á því vondi Rússinn og hans illa hyski eru einnig á höttunum eftir skjölunum. Hraðinn þarf nú samt aldrei að vera svo mikill að ekki geti þeir fengið sér smá "fisse" á leiðinni.

-Rökkvi