I skorpionens tegn [***½] (fáanleg í Laugarásvideo)
Ein af myndunum í dönsku stjörnumerkjasyrpunni. Ole Soltoft er hér mættur í
fyrri myndinni um Agent 69 Jensen, danskan leyniþjónustumann og kvennabósa.
Danska leyniþjónustan hefur fengið það hlutverk að afhenda Bandaríkjamönnum mjög
verðmæta örfilmu, sem alls ekki má komast í hendur illmennisins Scorpionens. Því miður
afhenda þeir saklausum dönskum lúða filmuna í stað þess að láta hana í hendur ameríska
spæjarans.
Agent 69 Jensen er þar starx tilbúinn að bjarga málunum, ef hann bara getur
nú haldið niðri í sér greddunni í smá stund. Þessi mynd er drepfyndin og afar skemmtileg eins
og allar dönsku stjörnumerkjamyndirnar.
-Rökkvi
|
|
|
|