The Six string samurai [*1/2] (fáanleg í Laugarásvideo)

       Hugmyndin er í sjálfu sér einhver sú besta. Myndin gerist í nútímanum, en Rússar áttu að hafa bombað Bandaríkin 1957 og tekið yfir þau. Las Vegas stóð uppi sem eina sjálfstæða borgin í heiminum og Elvis var kosinn til að vera konungur. Nú er Elvis dáinn, og leitin stendur yfir að verðugum arftaka. Þar kemur til sögunnar hetjan okkar, sem er nördi í jakkafötum með brotin flöskubotnagleraugu, gítar og samúraíasverð. Hann hakkar alla í spað á leiðinni til Vegas í ótúrúlega vönduðum bardagaatriðum (alla vegana miðað við staðalinn á þessari mynd almennt). Verst er bara, að þrátt fyrir þetta frábæra setup, er myndin eiginlega bara drullu leiðinleg.

-Rökkvi