Shaolin Soccer [*****] (fæst í Laugarásvídeó)

Einnig þekkt sem: Kung Fu soccer og Siu lam juk kau
Leikstjóri: Stephen Chow
Lengd: 111 mín
Kom út: 2001

Aðalhlutverk:
Stephen Chow .... Sing
Vicki Zhao .... Mui
Man Tat Ng .... Golden Leg Fung
Yin Tse .... Hung
Yut Fei Wong .... Iron Head (Big Brother #1)
Kai Man Tin .... Empty Hands
Patrick Tse .... Hung

Þvílík gargandi snilld! Plottið í þessari kínversku cölt mynd er e-ð á þessa leið: Fótboltamaður brotnar illa og verður alki. Finnur kung-fu stráka og þjálfar þá í fótbolta. Þeir rokka feitt. Voða einfalt og fínt.

Það sem er hins vegar snilldin við myndina er hvernig þetta er gert. Fyrir utan þennan fáránlega húmor sem oft er í kínverskum myndum (svona slapstick) þá eru fótboltaatriðin alveg unun að horfa á. Þeir sem eru á mínum aldri muna eflaust eftir fótboltateiknimyndunum sem voru sýndar á Stöð 2 í gamla daga. Þar var boltinn mínútu að fara í netið, teygðist allur og spiararnir hoppuðu marga metra upp í loftið og voru þar í óratíma. Þannig er Sholin Soccer.

Að horfa á bardagaatriðin er eins og að horfa á Matrix bardagaatriði með fótboltafíflum. Frábært! Það er skilda allra sem þykjast hafa húmor, hafa áhuga á cölt, b eða skrítnum myndum að sjá þessa mynd. Nauðsynlegt bjórmagn. 1 myndin er alveg næg í sjálfu sér.

-Jón Grétar