Scanners [****] (fáanleg á Laugarásvideo)

       Ein gömul og góð. Scanners eru menn með andlega hæfileika sem gera þeim kleift tengja sinn huga við huga annarra. Þannig geta þeir lesið hugsanir, stjórnað öðrum einstaklingum og meira að segja drepið þá. Prófessor nokkur, sem lengi hefur rannsakað skannera tekur að sér öflugan scanner til að berjast gegn neðanjarðarhreyfingu skannera, stýrðri af öflugasta skannernum í heiminum. Mjög skemmtileg á gamaldags hátt og fínt plott sem afhjúpast smám saman þegar á myndina líður.

-Rökkvi