Sannleikshornið

Þetta er sannleikshornið, sem samanstendur af alls kyns lygum. Allar fréttir í sannleikshorninu eru lognar upp, en kunna af og til að innihalda einhverskonar sannleika, þó sá sannleiki hafi þó aldrei mikið með raunveruleikann að gera. Efni sannleikshornsins kann hæglega að móðga þig og þá er um að gera að þú vorkennir þér sem mest, því við munum ekki gera það.
Sannleikshornið: þar sem sannleikinn er úti í horni.




Séra Flóki segir að jólasveinninn sé ekki til    (Rökkvi des 2005)

Séra Flóki hefur nú tekið að sér að segja börnum í sunnudagaskólanum að jólasveinninn sé ekki til. Við hjá lágmenning.is ákváðum að sjálfsögðu að grennslast fyrir um þetta mál.

"Þetta er svívyrðilegt!", sagði fjölskylufaðir nokkur sem var frávita af bræði. "Séra Flóki segist ekki vilja ljúga að börnum, en til hvers heldur hann þá eiginlega að við séum að senda þau í sunnudagaskóla?" "Það er náttúrulega gott mál að láta bulla þetta yfir þeim um guð, svo að maður geti síðan sagt þeim seinna að þau fari til helvítis ef þau eru óþæg og að guð sjái hvað þau eru að gera þegar þau eru að gera einhver skammarstrik á bak við mann, en það er bara ekki nóg", hélt fjölskyldufaðirinn áfram, "það að geta sagt krakkaskröttunum að jólasveinninn gefi þeim kartöflu í skóinn ef þau óhlýðnist og að Grýla éti þau er alveg ómissandi þáttur uppeldinu, sem Séra Flóki er núna búinn að eyðileggja fyrir mér. Hvernig á ég núna að ala upp börnin mín á sómasamlegan hátt?"

Séra Flóki var nú ekki lengi að svara þessum ásökunum. "Ég hef sko ekkert á móti því að ljúga að börnum. Það er nú einu sinni vinnan mína að ljúga að fólki daginn út og daginn inn og segja þeim eldgamlar bullsögur. Ég fæ hins vegar bara borgað fyrir að ljúga að guð og jesú séu til, ekki jólasveinninn. Ef ég á að ljúga því að jólasveinninn sé til líka, geta þau alveg drullast til að borga mér fyrir það líka, þetta gyðingapakk - það er ekki eins og ég sé á einhverjum bankastjóralaunum eða neitt. Annars skal ég líka alveg hætta sem prestur - ef ég fæ starfslokasamning upp á 130 milljónir!"



Píkuþrælahald bannað með lögum    (Rökkvi 2005)

Píkuþrælahald hefur nú verið gert ólöglegt á Íslandi og hvers kyns píkuþrælkun er nú bönnuð með lögum. Maskúlínistafélag Íslands, sem til þessa hefur óspart barist fyrir (karl)mannréttindum á landinu fagnaði nýju lögunum óspart í dag. "Þetta er stór sigur fyrir okkur karlmenn", sagði Carl R. Embus Wien, formaður Maskúlínistafélags Þýskalands, "ég er upp með mér að Íslendingar hafi nú náð sama áfanga og okkur hefur tekist í Þýskalandi." Karl R. Emban, formaður Maskúlínistafélags Íslands, var heldur ekkert að leyna hamingju sinni, "Það var í raun fárálegt að leyfa píkuþrælahald, úr því að almennt þrælahald hefur verið ólöglegt árhundruðum saman næstum því. Ég hef aldrei skilið af hverju þessi ákveðna tegund þrælahalds fékk að lifa áfram óáreitt, en nú er það myrka tímabil í sögu okkar yfirstaðið.!"

Lögin banna alla píkuþrælkun á Íslandi, svo sem að nölda yfir því að eiginmaður/kærasti ætli út með vinum sínum, láta hann koma með sér á tupperwave kynningar, láta hann horfa á Sex and the city með sér, segja að það sé barnalegt að horfa á Star Wars / keyra í torfærum á jeppanum sínum / láta eins og maður sé ennþá 6 ára, heimta að hann geri húsverk eða að bara kúra þegar hann vill ríða.

Karl R. lýsti yfir ánægju sinni með það að slík niðurlæging og misnotkun á karlmönnum væri nú ólögleg. Reðuröfund, félag róttækra femínista á Íslandi mótmælti þessu hins vegar harkalega og sögðu að þetta væri "Fáránlegt karlrembu rugl", "Afturhvarf til steinaldarhugsunarhátts" og "Hneyksli." Karl lýsti þessum athugasemdum femínsitanna algerlega á bug, sagði þær þröngsýnar og ómálefnalegar, auk þess sem femínistum gæti nú verið slétt sama hvort sem er, þær væru hvort eð allar lessur.

Hér sést mynd af píkuþræl sem nú hefur verið frelsaður

(Efst í greininni má einmitt sjá eitt af þeim niðurlægjandi áróðursspjöldum sem bönnuð hafa verið með lögum)

Betarokk heiðruð af forsetanum    (Rökkvi 2005)

Betarokk hefur hlotið baráttuverðlaun forseta Íslands í ár. Baráttuverðlaun forseta Íslands eru veitt árlega til einstaklinga sem hafa sigrast á ógurlegum erfiðleikum, sjúkleikum eða einstaklega erfiðum aðstæðum en samt náð að láta drauma sína rætast.

"Þeir sem hljóta þessa viðurkenningu eru einstaklingar sem virkilega hafa sigrast á aðstæðum sem yfirleitt myndu yfirbuga venjulegt fólk og náð að virkilega brillera á sínu sviði engu að síður. Þeir sem hljóta þessa viðurkenningu eru innblástur og hvatning fyrir allt fólk sem lifir við mikla erfiðleika að gefast ekki upp", sagði forseti vor við afhendingarathöfnina.
   

Áhorfendur sem fygldust með verðlaunaafhendingunni í beinni fögnuðu óspart

Betarokk hefur eins og öllum er kunnugt þjáðst af alvarlegu hæfileikaleysi allt frá því að hún fæddist. Hún var hins vegar dæmi um konu sem hélt alltaf áfram að berjast, gafst aldrei upp og náði loksins mikilli frægð og frama á Íslandi. Betarokk varð fræg fyrir rithöfundastörf, tónlist, blogg og marga fleiri hluti sem hún er gersamlega hæfileikalaus í. "Þetta er álíka tilkomumikið eins og ef að þroskaheftur maður myndi ná að verða heimsmeistari í skák" sagði forsetinn.

Betarokk hafði þetta að segja: "Ég er stolt af því að vera fyrirmynd fyrir allt hæfileikalaust fólk á Íslandi sem er að reyna að meika það." Örvar Freysson, öryrki sem nýlega fór hringinn í kringum landið í hjólastólnum sínum án nokkurrar hjálpar, var lítillega svekktur með að fá ekki verðlaunin, en viðurkenndi þó að Betarokk ætti þau meira skilið en hann.


Rosalega fínn strákur læknast    (Rökkvi 2004)

Guðmundur Guðmundsson, 32ja ára Íslenskur karlmaður hefur undirgegnist stranga meðferð og er ekki rosalega fínn strákur lengur. "Þetta er mikill léttir og líf mitt hefur svo sannarlega batnað til hins betra eftir þetta", segir Guðmundur, sem er aldeilis í sjöunda himni yfir þeim framförum sem hann náði í meðferðinni. Guðmundur lýsir vanda sínum á þennan hátt:

"Ég var búinn að vera rosalega fínn strákur alveg frá því í gagnfræðiskóla og það var mikið eymdarástand. Ég var alltaf mjög góður vinur allra stelpnanna og hlusaði á allt sem þær sögðu. Ég hafði alltaf áhuga þegar þær töluðu um tilfinningar sínar og vandamál við mig. Ég fékk þar af leiðandi aldrei á broddinn. Þegar þær sögðu við mig að ég væri rosalega fínn strákur, eða rosalega góður strákur og þess háttar hluti, hélt ég alltaf að það væri hrós. Ég gerði mér ekki grein fyrir að þær væru að segja mér að ég ætti við vandamál að stríða. Þetta er svona svipað og þegar drykkjusjúklingi er sagt að hann sé alkóhólisti, en hann er í of mikilli afneitun til að skilja það."

Guðmundur lýsir því hvernig hann læknaðist af sjúkleikanum.

   

"Ég var orðinn 31 árs og hafði aldrei stundað kynlíf þegar ég rakst á gamlan félaga minn úr Háskólanum, sem hafði ekki hitt í 8 ár. Hann hafði heldur aldrei fengið á broddinn þegar við vorum saman í HÍ, en þegar við hittumst í fyrra, trúði hann mér fyrir því að hann hefði farið á þetta frábæra námskeið og væri núna byrjaður að skora eins og vitleysingur."

"Það varð því úr að ég fór á sjálfshjálparnámskeið á vegum Maskúlínistafélags Íslands. Þar var mér kennt að horfa á kvenfólk eins og hluti, en ekki manneskjur. Síðan var ég látinn í raflostsmeðferð á meðan ég var látinn horfa á kvenfólk tala um tilfinningar sínar og vandamál, þangað til að mér fór að finnast svoleiðis óþolandi. Ég er búinn að vera hreinn í heilt ár núna. Ég hef ekki hlustað á konu tala um tilfinningaleg málefni síðan ég kom úr meðferðinni og ekki sýnt samúð með neinum vandamálum neinnar konu síðan þá."

"Það er liðin tíð að konur kalli mig rosalega fínan strák. Núna segja þær að ég sé drulluskokkur og aumingi, en það er yfirleitt ekki fyrr en eftir að þær eru búnar að sofa hjá mér! Ég er frelsaður og loksins farinn að fá á broddinn. Þó að Maskúlínistafélag Íslands bjóði líka upp á fyglinámskeiðið "Lækkaðu staðlana" fyrir þá karlmenn sem samt ekki geta fengið á broddinn eftir "Lærðu að hlutgera konur" námskeiðið sem ég fór á, þá þurfti ég þess ekki, því ég er ríkur eftir að hafa verið einhleypur í góðri stöðu í mörg ár. Líf mitt er yndislegt!"

Sannleikshornið óskar Guðmundi til hamingju með að sigrast á ástandi sínu.




Þjóðin er vanhæf!    (Rökkvi 2004)

Hans heilagleiki Davíð Oddson benti á það í dag að þjóðin er gersamlega vanhæf til þjóðaratkvæðagreiðslu gegn fjölmiðlafrumvarpinu, auk þess sem hún er bara vanhæf til að vera ósammála honum yfirleitt.

Davíð benti á það að fjöldi þeirra Íslendinga sem hefðu unnið hjá Norðurljósum, eða fyrir Baug, væri sláandi. "Ykkur myndi svima við að vita hversu margir Íslendingar hafa unnið á kassa í Bónus" sagði Davíð. Þar sem allir Íslendingar eru skyldir í a.m.k. sjöunda ættlið, eiga allir Íslendingar fjöldann allan af ættingjum sem hafa unnið fyrir Norðurljós eða Baug og eru því gersamlega vanhæfir til að kjósa um fjölmiðlafrumvarpið.

Davíð bætti einnig við að þjóðin væri ennfremur vanhæf vegna þess hversu mörgum Íslendingum hefði þótt gaman af að horfa á Stöð 2 í gegnum tíðina, eða lesa fréttablaðið og hversu mörgum hefði þótt "Opinberun Hannesar" leiðinleg. "Þess vegna er þjóðin bara að stjórnast af tilfinningarökum þegar hún tjáir sig í þessu máli", bætti Davíð við.

Davíð ætlar því að leggja fram vantrauststillögu á þjóðina á þinginu innan skamms. Sigurður Kári fagnaði rökum Davíðs óspart, því þó hann sé sjálfur stundum vanhæfur til hluta eins og að keyra bíl, eða halda vatni fyrir hrifningu þegar Davíð talar, þá er hann vel þekktur fyrir hæfni sína til að sleikja .......


Alþingismenn taka þátt í auglýsingaherferðum    (Rökkvi 2004)

Vegna þess hversu bágt alþingismenn eiga að vera með svona lág laun (og þá sér í lagi ömurleg eftirlaunakjör) og líka vegna þess hversu erfitt það er fyrir þá að fá neina vinnu þegar þeir hætta, hafa margir þeirra tekið upp nýtt ráð til að drýgja tekjurnar. Margir alþingismenn eru nefnilega farnir að taka að sér að leika í auglýsingum hinna ýmsu fyrirtækja hér á landi.

Þar má helst nefna Davíð Oddsson, sem hefur tekið að sér að auglýsa reglustrikur frá Griffli, Geir H. Haarde, sem auglýsir fiskveiðiár víðsvegar um landið, Ingibjörgu Sólrúnu sem auglýsir bílaumboðið Heklu og Sigurð Kára sem tekið hefur að sér að auglýsa Tuborg, Carlsberg, Smirnoff, Finlandia, Bacardi og ýmsar fleiri vörur sem ekki er pláss til að telja upp hérna.

Sumir leiðindapúkar hafa verið að setja út á þetta og segja að þetta sé siðferðislega rangt, en okkur er náttúrulega nær að búa þingmönnum okkar svona ömurleg kjör. Össur Skarphéðinsson var eini þingmaðurinn sem nennti að svara þessum bjánalegu ásökunum:

   

Össur ber af hvað varðar siðferði þingmanna
"Vissulega finnst mér þetta vítaverð hegðun hjá þessum þingmönnum, að selja sig svona," sagði Össur, "en ég vil taka fram í fyrsta lagi að Ingibjörg Sólrún er ekki þingmaður og er því stikkfrí af þessu öllu. Síðan vil ég líka taka fram að ég er sjálfur á siðferðislega mun hærra plani en þessir hinir þingmenn, sem eru að láta freistast af gróðatækifærum með því að leika í svona auglýsingum. Mér bauðst nefnilega há fjárhæð frá Skífunni til að auglýsa single-diskinn í búðunum þeirra með laginu "You ain´t seen nothing yet" með hljómsveitinni Bachman Turner Overdrive, en ég þverneitaði því tilboði!."


Markús Örn aftur kærður !    (Rökkvi 2004)

Rétt eftir að sleppa úr réttarsalnum hefur Markúsi Erni Antonssyni verið stefnt fyrir rétt. Stefnandinn er í þetta sinn hann Viktor, eiginmaður Leoncie, en hann hefur kært Markús fyrir að halda við eiginkonu sína, í kjölfar þessarar fréttar.

"Þetta er misskilningur" hrópaði Markús örvæntingarfullur í viðtali við okkur. "Hvað get ég gert að því að DV setji greinarnar sínar upp svona asnalega? Ég sver að mér myndi aldrei detta í hug að halda við umrædda kvenpersónu, ég er siðsamur maður að öllu leiti, fyrir utan þetta eina skipti sem ég sagði nokkra klámbrandara í áramótafrumvarpinu mínu... úps, ekki hafa þetta eftir mér."


Kærumál gegn Markúsi Erni vafðist fyrir dómsstólum    (Rökkvi 2004)

Kæra gegn Markúsi Erni Antonssyni, útvarpsstjóra var rétt í þessu felld niður fyrir héraðsdómi vegna skorts á sönnunargöngum. Það var Elín Líf Helgadóttir, 71 árs húsmóðir úr Vesturbænum sem kærði Markús fyrir klámfengið og sóðalegt orðbragð í fjölmiðlum. Elín fullyrðir að Markús hafi lesið upp fimm klámvísur og sagt fjölda grófra klámbrandara í áramótaávarpi sínu hinn 31.des síðasta árs.

Málið var látið niður falla vegna skorts á sönnunargöngum, þar sem dómstólum tókst ekki að hafa uppi á neinum öðrum en Elínu, sem hlustað höfðu á áramótaávarp útvarpsstjórans.


Davíð Oddsson sannar skaðsemi kommúnismans    (Rökkvi 2004)

Davíð Oddsson forsætisráðherra hefur nú náð þeim árangri að sanna fyrir fullt og allt að kommúnismi er vond pólitísk stefna. "Það vissu þetta svo sem allir fyrir" sagði Davíð "en það var ekki búið að sanna þetta ótvírætt fyrr en nú." Sönnunina fékk Davíð með að sýna í verki hversu skaðlegur kommúnisminn er.

Eins og allir vita gengur kommúnismi út á það að ríkið stjórni nánast öllu í landinu. "Nú þar sem ég er sjálfur forsætisráðherra og æðsti embættismaður ríkissins, samdi ég sjálfur sögu, lét vin minn gera kvikmyndahandrit úr henni og lét ríkið síðan borga fyrir myndina. Eins og þið öll sáuð leiddi þetta til algerrar hörmungar. Þetta sannar náttúrulega endanlega að svona hlutir eiga að vera í höndum einstaklinga og að kommúnisminn sökkar feitan."

Þessu framlagi Davíðs var einkar vel fagnað af frjálshyggjuarmi Sjálfstæðisflokksins, sem ýmsir hverjir vöknuðu jafnt um augun sem og buxurnar, allt af einskærri hrifningu.


Þreyttir en ánægðir...    (Júlíana Kristín 2004)

Þeir Lúðvík Huppason og Konráð Brjánn Sigurdórsson eru hamingjusamir menn. Þeir eru báðir nýkomnir á sextugsaldurinn og nýkomnir útúr skápnum eftir mörg ár þar inni.

"-Já, við eyddum mörgum árum saman inní þessum fjárans skáp!" Sagði Lúðvík aðspurður um veruna inní skápnum. "-Þetta var assgoti þröngt og óþægilegt en við höfðum þó hvorn annan til að styðjast við og elska." Sagði Konráð við sömu spurningu og leit heitfengnum augum til Lúðvíks. Þessir menn hafa greinilega tengst nánum böndum eftir að hafa eytt tíma inní skáp saman.

Þegar að ég spurði piltana um hvað þeir hefðu haft fyrir stafni inní skápnum þá urðu þeir hálfkindarlegir á svipinn og vildu sem fæst segja enda voru þeir orðnir þreyttir og vildu komast sem fyrst í bólið. "Við erum þreyttir en ánægðir..." Sagði Lúðvík að lokum og tiplaði léttfættur á eftir félaga sínum inní svefnherbergið, enda eftir miklu að slægjast þar á bæ.

   

Lúðvík og Konráð á góðri stundu.
Fréttablaðið fimmtudaginn 15.jan 2004 bls.20
Gísli Baldvinsson námsráðgjafi skrifar um Hannes Hólmstein:
"... ég er reiðubúinn til að fórna lífi mínu fyrir að hann fái að hafa skoðun."

Námsráðgjafi tekinn af lífi fyrir skoðanir Hannesar    (Uxaskalli 2004)

Ónafngreindur námsráðgjafi var tekinn af lífi seinni partinn í dag vegna skrifa og skoðana Hannesar Hólmsteins Gissurarsonar, samkvæmt tilkynningu frá ríkislögreglustjóra. "Hannes hefur ákaflega sterkar skoðanir og er mjög iðinn við að láta á sér bera", segir Gylfi Bertelsson, blaðafulltrúi ríkislögreglustjóra. "Þetta gjamm í honum Hannesi hefur farið fyrir brjóstið á mörgum þannig að það hreinlega varð eitthvað undan að láta."

Lausnin á þessu máli kom svo óvænt með Fréttablaðinu í morgun þar sem námsráðgjafinn skrifaði lesendabréf og bauðst til þess að láta lífið fyrir rétt Hannesar til að hafa skoðanir og tjá sig um þær. "Þarna var allt í einu komin leið til að ganga frá þessum málum á snyrtilegan hátt, við hringdum í námsráðgjafann og hann mætti niður á stöð um 15 mínútum síðar. Hann var svo hengdur og grafinn á mjög smekklegan máta. Nú ættu allir að geta verið sáttir."

Vestmannaeyjar afhentar Dönum    (Rökkvi 2003)

Í tilefni þess að fyrirliði danska kvennalandsliðsins í handbolta átti afmæli í gær, afhenti íslenska ríkisstjórnin Dönum Vestmannaeyjar að gjöf. Með þessu vildi ríkisstjórnin votta Dönum vináttu sína, en samt aðallega bara losna við Vestmannaeyjar og nöldrið í fólkinu sem býr þar.

"Þeir eru alltaf röflandi um jarðgöng þetta heimtufreka pakk og þeir gerðu okkur Sjálfstæðismenn að algerum fíflum með því að kjósa Árna Johnsen á þing" sagði Davíð Oddsson, forsætisráðherra. "Danir eru nú vanir því að sitja uppi með Færeyinga og þeirra bull, þannig þeir ættu nú ekki að kippa sér upp við að fá Vestmannaeyjar líka."

   

Við erum laus við þetta sker
Vestmannaeyingar hafa einnig fagnað þessum atburði óspart. "Nú getum við örugglega fengið jarðgöngin okkar" sagði Lundi Sprangan, eyjaskeggi "Sjáiði bara hvernig Færeyingum tókst að plata þá til að stjana undir rassinn á sér endalaust. Við ætlum sko ekki að fá minna frá Dönunum en þeir." "Já við ætlum sko að byrja strax á að setja okkur á hausinn og láta Dani borga brúsann" sagði Vestmannaeyingur sem hefur sko migið í saltan sjó ólíkt ykkur aumingjunum í Reykjavík sem haldið að það sé vinna að sitja við skrifborðið allan daginn. "Fyrst ætlum við t.d. að panta leikmenn frá NBA deildinni til að spila með körfuboltaliði ÍBV, en svo er margt fleira sem við erum með planað. Þar með talið er náttúrulega að fá jarðgöng yfir til Íslands, Færeyja og Grænlands og síðan kannski til Noregs, Danmerkur og Kanada þegar á líður. Það eru góðir tímar í vændum fyrir Vestmannaeyjar."

Ekki hafa Vestmanneyingar neinar áhyggjur af óæskilegum dönsku áhrifum á mál þeirra, þar sem þeir tala nú þegar mjög bjagaða íslensku. Til að nefna dæmi finnst íslenskufræðingum orðið "skidegodt" síst verri íslenska en vestmanneyska orðið "gæjalegt" auk þess sem það er ekki heldur eins hommalegt orð.

Heimdellingur kýs ekki Davíð!    (Rökkvi 2003)

Sá merki atburður átti sér stað í dag að Sveinn Kjardal, meðlimur í Heimdalli og SUS, ákvað að kjósa ekki Davíð Oddsson, félögum sínum til mikillar gremju. Réðust þeir á Svein og veittu honum alvarlega áverka með Nokia farsímum sem þeir báru á sér. Sveinn liggur nú á Landsspítalanum og er ekki talinn í lífshættu, því símarnir sem notaðir voru gegn honum voru sem betur fer mjög litlir. Umrædd kosning var um kynþokkafyllsta mann Íslands 2003, en það er árleg kosning sem útvarpsstöðin Létthommalegt 96,7 stendur fyrir.

Man kosningaloforð 4 ár aftur í tímann !    (Rökkvi 2003)

Margeir Páll Valdimarsson er kvalinn maður á sálu og hjarta. Það vill honum nefnilega til meins að hann getur munað kosningaloforð 4 ár aftur í tímann, eða sem nemur heilu kjörtímabili. Margeir er eini Íslendingurinn sem vitað er að þjáist af þessum kvilla.

"Þetta er hræðilegt, ömurlegt!" segir Margeir. "Þið gætuð ekki ímyndað ykkur svekkelsið sem ég upplifi í hverri einustu kosningabaráttu og vonbrigðin sem ég verð fyrir við að horfa á kosningarnar sjálfar." Margeir segir að hann myndi örugglega mun betur þola þetta allt saman ef hann gæti bara gleymt hverju stjórnmálamennirnir hefður lofað í síðustu kosningum, eins og allir aðrir Íslendingar eru svo færir um. Margeir hefur aldrei kosið sitjandi ríkis eða sveitastjórn á ævinni, þannig að vonbrigði hans eru oftast mikil og heiftarleg þegar kosningar eiga sér stað, þó hann viðurkenni einnig að verða líka fyrir heiftarlegum vonbrigðum jafnt og þétt gegnum kjörtímabilin.


   

Hér sést Margeir í einu af svekkelsisköstum sínum
Af hverju á fólk hunda?    (Uxaskalli 2003)

Njörður Njáll Marðarson, 54 ára, hefur nú lokið við að verja doktorsritgerð sína í freudískri sálfræði við Minnesota State University í Bandaríkjunum. Doktorsritgerðin fjallar um sálarlíf og framkomu hundaeigenda, og varpar að sögn Njarðar nýju ljósi á hegðun þessa hóps.

"Það hefur lítið verið horft á áhrif þess að hundarnir laðast kynferðislega að eigendum sínum, hversu óaðlaðandi sem öðru fólki finnst eigendurnir vera." Segir Njörður. "Samkvæmt rannsóknum mínum eru rúmlega 40% hundaeigenda, já, hundaeigendur á einmitt þessum forsendum. Þetta er þó að sjálfsögðu næstum því aldrei meðvitað."

Mynd: Nú hefur verið sett leikfang á markaðinn sem gerir þessum einstaklingum kleift að uppfylla þessa vöntun sína án þess að þurfa að standa í öllu stússinu sem fylgir því að eiga lifandi hund

   

Davíð Oddsson fær hiksta    (Rökkvi 2003)

Snemma í gærmorgun atvikaðist það að forsætisráðherra Íslands, Davíð Oddsson, fékk vægt hikstakast sem varði í um eina og hálfa mínútu. "Ég fullvissa ykkur um að ég mun brátt finna ódæðismanninn sem var að tala illa um mig" sagði Davíð í greinagóðu viðtali.

Enn hafði enginn játað um 10 leitið í dag en Davíð er vongóður um árangur. "Ég er búinn að vera að kalla hina grunuðu inn á teppi einn af öðrum, og það er bara tímaspursmál hvenær sá seki mun finnast."

Mynd: Hér sést reglustikusafn Davíðs, en það mun gegna lykilhlutverki í yfirheyrslunum

   

Ameríkani finnur typpið á sér!    (Rökkvi 2003)

Sá stórmerkilegi atburður átti sér stað í dag að Michael Walton, eintak af tegundinni Homo sapiens americanus (eða Bandaríkjamanni), fann á sér typpið. "Þetta var ótrúleg upplifun" sagði Walton, en það er afar fáheyrt menn af tegundinni Homo sapiens americanus séu færir um slíkt.

Bandaríkjamenn (Homo sapiens americanus) eru eins og flestir vita kominir af Evrópubúum (Homo sapiens europeus), en vegna ólíkra aðstæðna vestan hafs hófu þeir strax að þróast í aðra átt en forfeður þeirra. Sú þróun leiddi til mun feitlegra vaxtarlags en hjá Evrópubúum, vegna afar hás kaloríuinnihalds þeirra fæðu sem fyrirfinnst í Norður-Ameríku. Homo sapiens americanus urðu þar af leiðandi mjög fljótlega ófærir um að finna á sér typpin. Í raun var ekki fyrr en nú vitað með vissu hvort tegundin hefði misst þetta líffæri algerlega, líkt og Homo sapiens europeus missti rófuna á sínum tíma í þróunarsögunni.

Mynd: Auk hjólbarana notaði Mr.Walton fimm spegla við hina vel heppnuðu leit

   

Þorir varla lengur út í búð    (Uxaskalli 2003)

Daníel Ormsson, bókbindari, tekur stöðu sína í samfélaginu alvarlega. Daníel sá nefnilega ljósið eftir að hlusta á Hannes Hólmstein útskýra frjálsan markað og lögmálið um framboð og eftirspurn.

"Það er búið að opna augu manns fyrir því hversu mikil völd neytendur hafa - hvernig þjóðfélagið allt stjórnast af því hvaða vörur og þjónustu maður kaupir." Segir Daníel, "Auðvitað fylgir mikil ábyrgð svona miklum völdum þannig að manni ber skylda til að kynna sér hvert mál áður en maður tekur ákvörðun. Ekki vill maður umbuna einhverjum gangsterum og afætum með því að kaupa af þeim smjör eða tómatsósu."

Daníel hefur því lagt mikið á sig við að lesa sér til um eigendur og starfsmenn matvöruverslana, bensínstöðva og bókabúða, svo eitthvað sé nefnt. "Þetta er auðvitað ógurlegt magn af upplýsingum sem þarf að fara í gegnum áður en maður svo mikið sem kaupir sér pylsu, en þá kemur aftur á móti að samviskan er hrein. Það er hreint skelfilegt hvernig sumir neytendur misbeita valdi sínu."

   

Um leið og viðtalinu lauk sökkti Daníel sér ofan í bókhald sjálfstæðisflokksins.

Hræðilegar niðurstöður könnunar Sameinuðu Þjóðanna    (Rökkvi 2003)

Kofi Annan var miður sín í dag eftir að Alþjóð heilbrigðisráðið birti niðurstöður vítækrar könnunar um greindarfar mannkynsins. "Það hefur komið í ljós að helmingur Jarðarbúa er undir meðalgreind" sagði Kofi niðurbrotinn. "Þetta þýðir að um 3 milljarðar manns á Jörðinni þjást af greindarskorti af einhverju tagi."

Eftir þessar óhugnalegu niðurstöður virðast Sameinuðu Þjóðirnar vera algerlega ráðþrota. "Svona hefur ástandið verið áratugum saman. Hvernig sem við reynum hefur okkur ekki tekist að breyta þessari ömurlegu staðreynd. Margar þjóðir hafa reynt menntunar og fræðsluátök, en allt kemur fyrir ekki, þessi prósenta greindarskertra helst hin sama."

Mynd: Kofi Annan reynir að halda svipnum þó augsýnilega sé hann ekki í rónni >>>>>

   
Amerískir blökkumenn krefjast jafnréttis    (Rökkvi 2003)

Jesse Jackson var í miklum ham í dag þar sem hann krafðist sanns jafnréttis fyrir bræður sína. "Af hverju í andskotanum fær hvítur alltaf að gera fyrst í skák", sagði Jessi, fullur bræði, "þetta er gróf mismunun gagnvart svörtum!" Jesse og fylgismenn hans stóðu í þéttri fylkingu fyrir utan Hvíta húsið í allan gærdag til að krefjast að skákreglum yrði breytt í átt til jafnréttis.

Einnig hefur fylkingin krafist þess að niðrandi málnotkun gagnvart blökkumönnum verði bönnuð. Blökkumenn í Ameríku hafa lengi verið á móti því að vera kallaðir "black" og vilja vera kallaðir "Afro-American" í staðinn. Þar af leiðandi hafa fylgismenn Jesse krafist þess að niðrandi orðum eins og "black hole" (svarthol) og "blackout" yðri tafarlaust breytt í "Afro-American hole" og "Afro-American out." Einng kröfðust þeir að nafni kvikmyndarinnar "Black beauty" yrði breytt í "Afro-American beauty" og að það yrði ekki sagt "he´s the black sheep in the familiy" heldur "he´s the Afro-American sheep in the family."

Páfinn hættur þessu bulli    (Rökkvi 2003)

Jóhannes Páll fyrrum páfi var rétt í þessu að segja af sér páfaembættinu og afneita trúnni. Þetta gerði Jóhannes með orðunum "Ég er hættur þessu bulli." Jóhannes sagðist hreinlega ekki nenna þessu lengur. "Já, já, þetta er svosem búið að vera ágætt, þessi skrípaleikur hérna í Vadikaninu, það er náttúrulega viss fílíngur að ganga um í þessum búningum og hrópa halelúja, en nú er bara komið gott af þessu og tími kominn til að maður fari að gera eitthvað alverugefið sem skiptir kannski einhverju máli."

Aðspurður hvað það hafi verið sem fékk hann til að taka þessa drastísku ákvöðrun sagði hinn fyrrverandi páfi þetta "Mig langaði nú aðallega að fá mér á broddinn áður en ég drepst úr elli. Ég get nú ekki farið að deyja hreinn sveinn - einn frægasti maður heims. Það mætti nú fyrr vera hneysan. Svo er líka pirrandi allt þetta pukur sem maður þarf að viðhafa ef maður vill gera sjálfsagðan hlut eins og að rúnka sér. Ég var nú líka hundleiður á að predika þetta bull daginn út og inn. Guð á himnum, hnuss, þessar biblíusögur eru svo helvíti óspennandi og úreltur viðbjóður. Ef fólk vill almennilega afþreyingu þá getur það bara horft á myndir eins og LOTR í DVD. Þar er líka fullt af bulli um skrímsli, púka og guði - alveg eins og í biblíunni - nema bara spennandi."

Jóhannes sagði að það sem fyrir lægi væri augljóslega mikið sukk, svall og kvennafar, eitthvað sem hann hafi alltaf langað að gera öll þessi löngu ár "klæddur í þessi asnalegu föt alltaf" eins og hann orðaði það sjálfur.

"Já ég ætla sko beint á næsta bar, drekka mig pissfullan, finna tvær gellur og bjóða þeim í heilaga þrenningu með mér." Við óskum hinum fyrrverandi páfa góðs gengis. Það er greinilega satt að það er aldrei of seint að lifa lífinu.

   
   Við munum ekki sjá Jóhannes
   í þessum fötum aftur
Árni Johnsen lærir að hætta að stela    (Rökkvi 2003)

Árni Johnsen hefur snúið við blaðinu og segist vera alveg hættur að stela. "Já ég hef lært mína lexíu" sagði Árni í einlægu viðtali við okkur. "Þetta gerðist hérna inni á Kvíabryggju þegar við vistmennirnir vorum saman í sturtu. Einn félaga minna misti þarna gullhálsmen á gólfið og ég beygði mig eftir því til að hnupla því. Þessu sá ég samstundis eftir. Ég get ekki sagt annað en að ég hafi á því augnabliki lært að það getur haft afar slæmar afleiðingar að stela. Nú hef ég lært mína lexíu og mun aldrei stela aftur."

Árni segist aftur á móti vera búinn að læra að gefa í staðinn fyrir að stela, enda gaf hann Grudfirðingum nýlega glæsilegt pappamassalistaverk, sem hann bjó til í föndurstundunum á Kvíabryggju. "Það er sælla að gef en stela" sagði Árni, breyttur maður.


100% öryrki gengur í Sjálfstæðisflokkinn    (Rökkvi 2003)

Vilhjálmur Eiríksson, öryrki, skráði sig formlega inn í Sjálfstæðisflokkinn í dag. "Þetta hefði ég átt að vera búinn að gera fyrir löngu" sagði Vilhjálmur í fjörugu viðtali.

"Það var bara ekki fyrr en ég sá viðtal við Pétur Blöndal núna nýlega í sjónvarpinu þar sem ég fattaði hvernig lág í málunum. Eins og Pétur segir, þá er náttúrulega bara rugl að við séum að sóa öllum þessum skattpeningum í einhverja helvítis aumingja."

Vilhjálmur segir að ein stærsta hvatning hans til að styðja D-listann sé hvað hann langi mikið að kaupa sér DVD spilara."Já, það er sko ekki séns að ég sé eitthvað að meika það að vera að borga einhvern himinháan skatt af þessum litlu örorkubótunum sem ég fæ, bara til að dúlla undir rassgötin á einhverjum aumingjum í samfélaginu. Það er sko dýrt að kaupa sér góðan DVD spilara, svo ég ætla ekkert að horfa upp á einhverja kommúnista henda peningunum mínum í einhverjar blóðsugur, þegar ég gæti annars keypt LOTR special edition double pack fyrir þá."

   

Mynd: Vilhjálmi leiðist stundum soldið og vildi gjarnan eiga DVD spilara til að stytta sér stundir.