Robocop 2 [***] (til í Laugarásvideo)
Lengd: ca ?? min
Litmynd
Leikstjóri: Irwin Kershner
Aðalhlutverk: Peter Weller....Robocop
Tom Noonan....Cain
Nancy Allen....Anne Lewis
Þessi mynd er beint framhald af Robocop I og er í svipuum stíl. Mennirnir á bak við þessa mynd eru sko engir smákallar, leikstjórinn er sá sami og leikstýrði Star Wars, Episode 5 og sá sem skrifaði söguna er enginn annar en Frank Miller sem skrifði blóðugustu og dýpstu Batman sögur ever, Dark Knight returns og Batman:Year One. Það er líka gott að eiginlega allir úr fyrri myndinni koma aftur, Robocp er leikinn af Peter Weller aftur, partnerinn hans hún Anne kemur aftur, yfirmennirnir hjá OCP eru þeir sömu og meira að segja sömu löggurnar byrtast á löggustöðinni! Svona á að gera framhald!
Í þessari mynd finnst sumum hjá OCP Robocop vera orðinn outdated og byrja að þróa nýjan óskapnað, Robocop 2. Á sama tíma er nýtt eiturlyf komið á markaðinn sem heitir NUKE og er sölu þess stjórnað af Cain. Það æxlast svo einhvernveginn þannig að Cain er drepinn og talinn vera príma í hlutverk Robocop 2. Then all Hell brakes loose!
Handritið í þessari mynd er ekki eins gott og í fyrstu myndinni. Hér eru klisjurnar gegnsærri og dialogið er ekki alveg eins gott. Robocop er samt orðinn mannlegri og það er svolítið gaman að fylgjast með því hvernig unnið er úr því þegar hann hittir konu Murphy. Þetta er samt ekki vond mynd eins og sumir vilja halda fram. Hérna eru ennþá til staðar skotin á einkavæðinguna og peningagræðgina (sólaráburðsauglýsingin er æði!) og OCP er enn til staðar og hefur lítið breyst. Leikurinn er jafn góður/slæmur og í fyrri myndinni því hérna er sama fólkið komið aftur. Sem sagt, bara helvíti gott!
*** (af fimm mögulegum)
Nauðsynlegt bjórmagn: 1-2 (fer eftir hversu mikill Robo fan þú ert)
-Jón Grétar
|
|
|
|