Rektor på sengekanten [**1/2]
Úr sengekanten seríunni en samt ekki raunveruleg klámmynd. Rétt sést í allsbert fólk.
Söguþráðurinn er hins vegar meira og minna allur um eitthvað sem gerist á sengekantinum,
eins og nafn myndarinnar gefur til kynna.
Þetta er saga rektors nokkurs (Ole Søltoft) í menntaskóla fyrir drengi. Markmið hans er að stækka
skólann og opna hann fyrir stelpum, því það sé nú nútímalegt. Þetta gengur hins vegar
eitthvað illa hjá honum. Hann verður þar af leiðandi getulaus af stressi og getur ekki
gagnast skvísunni sinni. Til að reyna að afla fjármagns til aðgerðanna er skólinn rekinn
sem hótel fyrir ferðamenn um sumarið (af nemendum og kennurum). Það byrjar hins vegar
fyrst að vera fjörugt á hótelinu þegar tveir nemendur fara að setja greddulyf út í
matinn hjá öllum gestunum.
Alveg á danska mátann. Góð afþreying.
-Rökkvi
|
|
|
|