Rekkjuhegðun
Eins og gáfað fólk og dyggir lesendur muna (þið eruð ekki alveg sami hópurinn...face it) þá
talaði ég um í einum pistlinum mínum hvernig ég vill ekki að stelpur séu í rúminu. Talaði ég um
hversu óþolandi það er þegar stelpan liggur bara og lætur ríða sér og gerir ekki mikið meira en að
stynja. Þetta er e-ð sem ég fékk því miður að kynnast einu sinni. Núna ætla ég að tala um hinn pólinn.
Þó svo að það sé leiðinlegt að hafa það á tilfinningunni að maður sé náriðill þá er lítið skárra
að vera eins og Ródeó kúreki á ótemju. Sjáið þetta bara fyrir ykkur: Eins og alvöru karlmaður ætlar
hann að byrja sessionið á því að slekja gelluna aðeins. Sér til ólýsanlegrar skelfingar tekur hann
eftir því að hann missir heyrnina um leið og hann byrjar. Heyrnarleysinu fylgir líka óhemju þrýstingur
á höfuðið þegar gellan kreistir saman á sér lappirnar og gólar af áfergju þegar greyið drengurinn
er varla búinn að snerta konuna með tungunni. Til þess að gera þetta enn hættulegra þá er eins og
gellan sé að dansa skrykkdans í rúminu þannig að greyið drengurinn er í bráðri hættu á að fara úr
hálslið, kafna eða missa heyrnina.
Hér held ég að drengurinn reyni aðra aðferð...
Drengurinn er rétt kominn í stellingu. Búinn að renna sér inn og liggur
makindalega ofan á gelluni þegar ósköpin byrja. Fyrst fara mjaðmirnar að hreyfast
hægt og rólega...eins og áður. Allt í einu finnur drengurinn, sér til mikillar
skelfingar að það er e-ð að. Mjaðmahreyfingarnar verða örari og það er álíka erfitt fyrir
hann athafna sig eins og ef hann ætlaði að nauðga Léttfeta hans Lukku Láka. Gellan grípur í
hausinn á honum og gerir tilraun til að kæfa hann í brjóstunum á sér (þetta gera flatbrjósta
konur líka ef þær eru svona á annað borð). Þegar hann er rétt búinn að ná andanum flippar hún sér
við og þá fyrst byrja lætin! Þar sem gellan heldur greinilega að hún sé hluti af hinu sterkara
kyni af því að hún er ofaná byrjar hún að gefa frá sér hljóð. Þetta byrjar á lágum stunum sem
fara stighækkandi. Þegar drenggreyið heldur að það bara geti ekki orðið verra fer þetta sem hamast
ofaná honum að rýta eins og svín.
Sjáið þetta fyrir ykkur...skelfingarhræðslusvipur á greyið drengnum sem liggur þarna með
rýtandi flogaveikissjúkling ofan á sér. Þetta bara er ekki fallegt.
Það má nefnilega ekki gera of mikið...
- Jón Grétar Sigurjónsson
|
|
|
|