The Refrigerator [**1/2] (fáanleg á Laugarásvideo)

Þetta er bíómynd um ógurlegan mannætuísskáp sem er í leiðinni hurð til helvítis. Ungt par flytur inn í íbúð í skítahverfi sem inniheldur þennan fjölhæfa ísskáp. Allir sem hafa búið í íbúðinni áður hafa horfið á dularfullan hátt. Ísskápurinn illi byrjar að sjálfsögðu að háma í sig fólk (og kyngja því síðan niður til helvítis). Aumingja stelpan er alveg miður sín yfir öllu þessu, en sem betur fer er búlgarskur ofurhetju pípulagningarmaður innan handar til að berjast gegn myrkraöflunum fyrir hana.

-Rökkvi