Reanimator [***] (fáanleg á Laugarásvideo)
Þetta er náttúrulega klassík. Ungur læknanemi hefur uppgötvað
töfravökvann (sem er auðvitað grænn á litinn og sjálflýsandi), sem
getur endurlífgað dauðar verur. Hann flytur inn hjá bekkjabróður
sínum og saman fara þeir að prófa efnið á líkum í krufningarherberginu.
Skemmtileg hryllingsmynd, sem tekur sig ekki alltof alvarlega. Það er
líka mjög sniðugt að vökvinn getur vakið einstaka afskorna líkamsparta
til lífsins.
-Rökkvi
|
|
|
|