Ready to Rumble [****] (til í Laugarásvideo)
Sérdeilis brilliant mynd um tvo nörda sem dýrka wrestling framar öllu og vita ekki einu
sinni að það er fake. Þeir vinna sem
skólphreinsimenn, en eyða annars öllum sínum frístundum í að fylgjast með wrestling.
Þegar uppáhalds wrestlerinn þeirra, Jimmy King, tapar heimsmeistaratitlinum ákveða þeir að leita hann
uppi og hvetja hann til dáða á ný. Þeir vita náttúrulega ekki að Jimmy King er bara feitur,
lífsleiður og drykkfelldur hillbilly - en ekki hetjan sem hann er látinn leika í hringnum.
Mjög góður húmor (mestmegnis á mjög lágu plani, sem er líka mjög viðeigandi fyrir myndina).
Hér eru Oliver Platt og David Arquette í aðalhlutverkum ásamt fjölmörgum stórum nöfnum úr wrestling
heiminum eins og Sting, Bill Goldberg or Diamnond Dallas Page.
-Rökkvi
|
|
|
|