Polyester [***1/2] (fæst í Laugarásvideo)

John Waters

Divine leikur húsmóðurina í Fishpaw fjölskyldunni sem eru algert skítapakk að hætti John Waters. Fjölskyldufaðirinn rekur klámmyndabíóhús, dóttirin er hóra og sonurinn er geðsjúkur dópisti. Fjöldi manns kemur reglulega saman fyrir utan húsið þeirra til að mótmæla bíóhúsi mannsins og mamma Divine gerir ekkert nema níða niður dóttur sína og stela af henni peningum. Þetta er hrottaleg mynd með ruddahúmor, ofbeldi, perraskap og illmensku eins og John Waters einn kann að gera.

-Rökkvi