The Navy vs. the Night Monsters [***] (1966, fæst í Laugarásvideo)
Einnig þekkt sem: Monsters of the Night
The Night Crawlers
Lengd: 85 mín
Leikstjóri: Michael A. Hoey
Aðalhlutverk:
Mamie Van Doren .... Nora Hall
Anthony Eisley .... Lt. Charles Brown
Billy Gray (I) .... C.P.O. Fred Twining (as Bill Gray)
Bobby Van (I) .... Ensign Rutherford Chandler
Þetta er ein af þessum myndum sem maður bara á að sjá ef maður vill kalla sig b-mynda fan!
Mamie Van Doren er cult hetja vegna allra b-myndanna sem hún lék í í gamla daga
(Sex Kittens go the College, Voyage to the Planet of Prehistoric Women ofl).
Plottið er þannig að flugvél sem er að flytja plöntu- og dýrasýni frá suðurskautslandinu
verður að nauðlenda á herstöð í miðju Kyrrahafinu (eða allavega e-u hafi þarna út í
rassgati). Í ljós kemur að það er e-ð illt í vélinni sem drepur fólkið. Það kemur svo í
ljós að þetta eru tré sem éta fólk og geta gengið.
Þetta er alveg hreint æðislega heimskulegt plott sem er dýrslega fyndið (sérstaklega
eftir 2-3 bjóra). Myndin er í þessum 60´s stíl, allir hreinir, alltaf, karlarnir
kurteisir við konurnar og allir eru séntilmenni. Í myndinni eru notaðar gamlir bútar
úr stríðsfréttamyndum og heimildarmyndum sem gera þetta að algerlega erkitýpískri gamalli
og góðri b-mynd. Hún er líka stutt og leikurinn er svo barnalegur stundum að maður vill
helst bara gráta af gleði. Mynd eins og þessi er nauðsynleg í b-mynda kvöldið!
Nauðsynlegt bjórmagn: 2-3
-Jón Grétar
|
|
|
|