I Løvens Tegn [****] (til í Laugarásvideo)

Gamlir graðir greifar, allsbert fólk í samkvæmisdönsum, dinglandi tillar og dillandi rassar. Svona lagað geta bara Danir komið upp með! Fjallar um tvær eldri konur sem eru að reyna fyrir sér sem rithöfundar. Því miður eru sögurnar þeirra hver annarri misheppnaðri. Eftir að hafa verið hafnað af öllum helstu útgáfufyrirtækjum Danmerkur með hverja væmnu ástarsöguna á fætur annarri, ákveða þær að skrifa um æskuuppátæki(/farir) sínar þegar þær voru í dyggri þjónustu greifa nokkurs.

Þær þora hins vegar ekki að leggja eigin nöfn undir bókina, en setja frænda sinn, sem býr í útlöndum, sem höfund. Því vill hins vegar svo miður að frændinn á leið heim til Danmerkur einmitt þegar bókin er búin að ná sem hæstum vinsældum! Grey strákurinn er nú kominn með alla kvenþjóð Danmerkur spólandi á eftir sér og einnig siðgæðislögregluna, sem reyndar er í mjög ólíkum erindagjörðum!

Dansatriðin í þessari mynd eru alveg best. Dönsk kímnigáfa út í gegn!

Klassískar setningar úr myndinni: "Og de skriver kneppet med kun en p!"

-Rökkvi