Ljótt fólk

Eins og flestir vita fórum við Rökkvi í smá bíltúr í gær og dreifðum Cult 1 á valdar vídeóleigur. Þó svo að mér þyki óendanlega gaman að tala um það hvað við gerum flotta og fyndna hluti þá ætla ég ekki að tala um það núna... núna er það ljótt fólk.

Þegar við vorum í bíltúrnum í gær sáum við Rökkvi soldið fyndið, eða kannski sætt. Út undan okkur sáum við par vera að labba. Ekki í frásögur færandi nema hvað að þetta var alveg rosalega ljótt fólk. Þá meina ég svona reglulega ljótt fólk. Skakkar tennur, skakkt í framan, ljótar tennur, bara allur pakkinn. Þarna gengu þau saman, hönd í hönd svo óhemju ástfangin...not a care in the world. Það er bara einhvernveginn svo sætt að sjá ástfangið ljótt fólk. Svona krúttlegt. Manni finnst til dæmis alltaf soldið sætt að sjá apa saman þó svo að maður sjái ekki beint ekki eitthvað fallegt við apana. Þeir eru meira svona krútt. Það er eins með ljóta fólkið, það er svona krúttlega sætt að sjá það saman. Svona ástfangið.

Þó svo að ég hafi sagt þetta er ekki þar með sagt að mér finnist eins fallegt að sjá ljótt fólk í vessaskiptum. Þegar þú ert með vinum þínum á kaffihúsi, á pöbb eða í ísbúðinni þá vilt þú ekki verða vitni að vessaskiptum fólks. Að sjá þegar slefið slitnar ekki milli þess og tungan er á fleygiferð um allt andlit er bara ekki fallegt. Ekki einusinni þegar fallegt fólk er að gera það. Þegar gerendurnir eru síðan orðinr útlítandi eins og skepnur úr martröðum Tolkiens þá er manni bara nóg boðið! Þó svo að það sé gaman að sjá apana í dýragarðinum hef ég engan áhuga á að sjá þá í samförum eða slefskiptum...það er ógeðslegt! Sama á við um ljóta fólkið. Það á ekki að gera annað en láta lítið fyrir sér fara og hugsa um hvort annað á almannafæri. Ekki gera það sem þið hugsið nema heima hjá ykkur bak við luktar dyr og glugga.

Nú eru örugglega allir rétthugsunarplebbarnir að froðufella af pirru þegar þeir lesa þetta. "hvernig getur þú sagt að einhver sé ljótari en þú?" "rosalega ertu ömurlegur". Hvernig get ég sagt að einhver sé ljótari en ég? Vegna þess að ég á spegil! Er ég ömurlegur að segja það sem allir vita að er satt? Örugglega. Mér er bara alveg sama þó svo að órakaðar mussukellingar eða andfúlir og illa lyktandi fitukeppir segja um mig. Mér er líka nokk sama hvað sætar sílíkongellur og ljósabrenndir gúmmítöffarar segja um mig.

Ég segi bara það sem mér finnst!

-Jón Grétar Sigurjónsson