Liðið á bak við síðuna

Rökkvi Vésteinsson (bloggari, uppistandari, wrestler og lágmenningarfrík)


Það eru komin meira en þrjú og hálft ár síðan ég byrjaði með lágmenning.is, en lágmenningin snýst ekki bara um heimasíðuna heldur svo margt annað. Það sem ég kalla lágmenningu er afþreyingarefni sem er beinlínis meðvitað og viljandi á lágu plani á einn eða annan hátt.

Lágmenning getur verið sjokkerandi, politically incorrect, illkvittin eða bara hreint og beint heimskuleg, en það er einmitt það sem gefur henni litinn. Lágmenning er ekki bara eitthver auðmelt afþreyingarefni sem er framleitt á færibandi fyrir sljóan neytendahóp. Lágmenning hefur alltaf einhverskonar "twist."

Ég er ekki við eina fjölina felldur hvað varðar að koma frá mér afþreyingarefni, en það á þó allt það sameiginlegt að vera sannkölluð lágmenning. Blogg, uppistand, leikin video, wrestling, hljóðsketchar, klámvísur og hvað annað sem ég kann að gera, þetta er allt á lægsta plani og ég er stoltur af því!

Email: rokkvi@lagmenning.is