Opið bréf til Leoncie
Yðar hátign. Mig langar til að benda yður á mikinn misskilning sem þér hafið
oft haldið fram, eða það að þér sé mismunað hér á landi vegna þess að Íslendingar
séu rasistar.
Íslendingar eru mjög langt frá því að vera rasistar, erum þvert á móti mjög hrifin
af útlendingum. Fjöldinn allur af íslenku
kvenfólki hikar nú t.d. ekki við að hoppa upp í rúmið með alls konar útlendingum sem
koma hingað (sérstaklega þó kannski frönskum sjóurum). Þetta er meira að segja svo
áberandi, að Flugleiðir hafa auglýst
sérstakar "one night stand" ferðir hingað. Ef þér trúir mér ekki, bið ég yður
að vinsamlegast líta inn á Píanóbarinn einhverntíman fljótlega.

Íslenskir karlmenn eru jafnvel framar landsystrum sínum í þessum efnum. Þeir
hafa svo mikið álit á asískum konum að fjöldinn af þeim er tilbúinn að
ferðast hálfa leiðina yfir hnöttinn til að finna sér konur í Tælandi og Filipseyjum.
Sumir eru meira að segja svo sannfærðir um ágæti tælenskra kvenna, að þeir eru tilbúnir að
panta þær úr bækling, þó þeir þekki þær meira að segja ekki neitt.
Þess vegna er það nú af og frá að Íslendingar séu rasistar. Það er hins vegar
mikið rétt að yður hefur verið gróflega mismunað hér á landi, og þér hafið ekki fengið þá
virðingu sem tónlistarsnillingi eins og yður sæmir.
Ástæðan er bara sú að Íslendingar, þó þeir séu ekki rasistar, eru með mikla og
rótgróna fordóma gagnvart kóngafólki. Þar sem þér eruð prinsessa, verðið þér illa
fyrir barðinu á þessu. Ísendingar voru nefnilega undir danska kónginum í mörg
hundruð ár og þurftu að þola af honum kúgun og valdníðslu. Við vorum t.d. pínd til
að kaupa ormétið mjöl af dönskum kaupmönnum á okurverði svo öldum skipti. Þetta
hafa Íslendingar aldrei alveg fyrirgefið, og hata þar af leiðandi allt kóngafólk,
þar með talið indverskar prinsessur.
Það voru sem sagt mikil mistök í markaðssetningu yðar að upplýsa þjóðinni það að
þér væruð prinsessa. Ef sú mistök hefðu ekki verið gerð, get ég lofað yður að
þér væruð stærsta poppstjarna Íslands öllum væri sama um Birgittu Haukdal.
p.s. ég er þrátt fyrir mikla aðdáun á yður er ég samt sérlega móðgaður í yðar garð.
Mér finnst að þér hafið mismunað illa gagnvart mér, þar sem þér hafið hótað t.d.
Sigurjóni Kjartanssyni og Beturokk kærum og úthrópað þau sem rasista, en aldrei
sýnt mér neina athygli.
Þetta finnst mér gróf mismunun í minn garð, sérstaklega þar sem ég er rasisti með
endemum. Til marks um hversu mikill rasisti ég er, get ég staðfest að ég hef látið út
úr mér alls konar
rasista athugasemdir af grófustu gerð, eins og að Ameríkanar séu ekkert sérstaklega
grönn þjóð, Spánverjar séu
smámæltir, Frakkar kunni ekki að segja H, Japanir kunni ekki að segja L, Bretar séu
ekkert góðir kokkar, Ítalir séu ekkert góðir að skipuleggja, Þjóðverjar hafi ekkert
sérstakan húmor og að mér finnist Brest kvenfólk ekkert voðalega fallegt.
Vinsamlegast sendið mér því kæru, eða að minnsta kosti hótun um kæru, svo ég
í það minnsta viti að yður sé ekki alveg sama um mig.
Aðdáunar og baráttukveðjur
- Rökkvi Vésteinsson
|
|
|
|