Leiðinleg pör

Djöfull þoli ég ekki svona pör sem þurfa alltaf að vera að kyssast og káfa á hvoru öðru fyrir framan alla í kringum sig (sérstaklega ef þetta er svo líka ljótt par). Ég þoli bara ekki svona fólk sem þarf alltaf svo ofboðslega mikið að vera að vera showing off hvað það er ofboðslega ástfangið og happy. Er eitthvað meira óþolandi heldur en að vera að spjalla við vin sinn og þá fer hann að smjatta upp í kærustuna sína þegar maður er í miðri setningu? Ég þoli ekki svona smjattipör.

Þegar við félagarnir vorum í MH þá var eitt svona smjattipar sem sat stundum á staðnum okkar og gerðu sitt besta til að láta okkur allavegana hlusta (því við pössuðum okkur vel að horfa undan) á smjattið og slefið í hvoru öðru. Síðan þurfti maður að hlusta á svona væl: "Æi, ertu að fara í tíma, þá sé ég þig ekki í alveg 40 mínútur, vææææl." Allra skemmtilegast er að vera að spila við svona fólk og þurfa að bíða eftir að það leggi út af því það þarf að kyssast í svona hálfa mínútu fyrst.

Eeeeen, það er ekkert skemmtilegra en að sjá svona sambönd fara í rúst. Það er næstum allra kvalanna og klígjunnar virði, sem maður hafði þurft að þola. Málið er nefnilega að svona pör láta yfirleitt bara svona til að hylma yfir óöryggið í sambandinu, þess vegna þurfa þau að sýna sig svona mikið. Þess vegan segi ég við alla bræður mína og systur þarna úti í heiminum sem þurfa að horfa upp á svona viðbjóð í dag: Ekki láta bugast, verið þolinmóð og þið munið brátt fá nóg til að hlakka yfir....

-Rökkvi Vésteinsson