Viðtal við Kynþokkafyllsta mann Íslands !
Hljóp frá konunni og börnunum!
"Það tók mig rúman áratug að komast að því að fjölskyldulíf er
ekki fyrir mig", sagði kynþokkafyllsti maður Íslands. "Maður
var þarna að dútla í einhverjum hversdagslegum hlutum sem ekkert
tekur að tala um, en þegar ég var kosinn kynþokkafyllsti maður Íslands,
sá ég að þetta var náttúrulega bara tómt rugl."
Búinn að finna sér nýja píku!
"Já, ég var nú ekki lengi að komast upp á aðal gelluna á vinnustaðnum
og með henni stakk ég af frá konunni og krökkunum. Þetta var allt mjög
dramatískt og tilkomumikið, eitthvað sem lesendum Heyrt og Séð finnst
eflaust gaman að lesa. Já ég er búinn að finna mér nýja píku, og
það er yndislegt", segir kynþokkafyllsti maður landsins og hlær léttilega.
Aldrei að vita hvað framtíðin ber í skauti sér!
"Vissulega er ég mjög ástfanginn og ánægður með nýju gellunni, en maður
veit aldrei hvað framtíðin ber í skauti sér" segir kynþokkafyllsti maður
Íslands eftirvæntingarfullur. "Það eru auðvitað margir möguleikar þegar
maður hefur verið kosinn kynþokkafyllsti maður landsins. Nýja gellan mín
vill náttúrulega helst eyða restini af lífinu með mér en hún gerir sér
náttúrulega alveg grein fyrir að ég fer ekkert að gera sömu mistök og
Ingibjörg Sólrún og fara að lofa einhverju
langt fram í tímann bara til að láta bögga mig ef ég stend síðan ekki við það."
Úr einni holu í aðra!
"Það gæti nú bara farið svo að maður yrði eins og golfkúla, færi bara úr
einni holunni í aðra" segir kynþokkafyllsti maður landsins flissandi og
ég spyr hann: "Þú ættir nú kannski að íhuga að reyna að verða fyndnasti maður
Íslands líka - í viðbót við að vera sá kynþokkafyllsti." "Það má nú alltaf
athuga það mál" segir kynþokkafyllsti maður landsins, "en það verður þá bara
eitthvað svona aukalega. Nú þegar ég hef þennan titil þá verð ég augljóslega
fyrst og fremst að lifa upp til hans. Ég vil ekki valda þeim vonbrigðum sem
kusu mig."
Við kveðjum hér kynþokkafyllsta mann Íslands og óskum honum góðs gengis í
framtíðinni. Við borguðum honum 10.000 kall fyrir að koma í viðtalið og það
var sko vel þess virði.
-Rökkvi
|
|
|
|