Komplexar í kvenfólki

Fyrir ekki all svo löngu var kvenmaður sem tók það fram við mig, alveg upp úr þurru, að hún myndi aldrei sofa hjá mér. Ástæðan var víst að hún hafði fyrr um daginn spurt mig hvort að ég myndi taka eftir því hvort stelpan væri með fellingar eða feitan rass og þess háttar, ef við værum að knulla og hún væri ofan á. Þessi spurning vakti strax upp mjög skírt og ógeðfellt flashback í huga mér, þannig að ég gat ekki svarað þessu neitandi. Ég sagði þess vegna "no comment" sem hvaða hálfviti sem er skilur að þýðir "já" í þessu tilviki.

Ástæðan fyrir því að gellan tók fram að hún myndi aldrei sofa hjá mér (og ég var ekki einu sinni byrjaður að pæla í því!) var semsagt að ég myndi þá örugglega bara taka eftir öllu sem miður væri í hennar útliti og hún yrði alveg paranoid að halda inni í sér maganum o.s.frv.

Það er ekkert nýtt að hreinskilni þurrki út möguleika manns til að fá á broddinn, en mér finnst þetta hins vegar mjög áhugaverð pæling, og þess vegna ætla ég að útkljá þetta mál með skoðanakönnuninni hér fyrir neðan:



Það er greinilegt að hérna skiptast karlmenn í tvo u.þ.b. jafna helminga. Þeir sem setja svona lagað fyrir sig eru alls 55%, þar af 6% sem nota trikkið að loka augunum og hugsa um einhverja aðra.

Afgangurinn af karlmönnunum eru ekkert að spá í þessu (18%), finnst það betra (11%), fá það svo sjaldan að þeir hafa ekki efni á að vera kröfuharðir (4%) eða eiga í nógu með eigin komplexa (13%).

Allt er þetta nú gert í þágu vísindanna og ég vona að þetta hafi upplýst ykkur og svarað heimspekilegum vangaveltum sem þið kunnið að hafa haft.

- Rökkvi Vésteinsson