Krull [***1/2] (1983, til í Laugarásvideo)

Einnig ţekkt sem:
Dragons of Krull (1983) Dungeons and Dragons (1983/II) Dungeons of Krull, The (1983)
Krull: Invaders of the Black Fortress (1983)

Lengd: ca 119 min ( UK:117 / USA:121)
Litmynd

Leikstjóri: Peter Yates

Ađalhlutverk:
Ken Marshall....Prince Colwin
Lysette Anthony....Princess Lyssa
Frddie Jones....Ynyr

       Ţetta er ein af ţessum myndum sem allir fantasy ađdáendur ţekkja frá sínum yngri árum. Sjálfur horfđi ég alltaf löngunaraugum á ţessa mynd en ţorđi ekki ađ taka hana, tók frekar Star Wars aftur og aftur ţví ţar var komin örugg skemmtun.
       Myndin fjallar um ţađ ţegar The Slayers ráđast á plánetuna Krull. Tvö stríđandi ríki ganga ţá í bandalag međ ţví ađ gifta prinsinn og prinsessuna í sitthvoru ríkinu. Ég hélt ađ ég vćri ađ taka einhverja erkitýpíska b-mynd ţegar ég tók Krull en svo reyndist ekki vera. Búningarnir í myndinni eru, ótrúlegt en satt, ekkert sérlega slćmir og margir eru bara hreint og beint flottir, tónlistin er eftir James Horner mann sem samiđ hefur fyrir margan stórann mannin og leikararnir sem sjást ţarna í aukahlutverkum eru m.a. Liam Neeson (Star Wars: Episode 1, Rob Roy, Schindler´s List) og Robbie Coltrane (Cracker, Goldeneye).
       Myndin tekur sig hćfilega alvarlega en handritiđ er bara alveg hreint eins og vera skal í mynd sem gerist í heimi langt í burtu, fullt af ćvintýrum. Ţetta er kannski ekki b-mynd en ţetta er cult-klassík, mynd sem hefur gleymst í flóđi lélegra mynda sem flćddu yfir okkur eftir Star Wars. Ţetta er ekkert meistarastykki, en skemmtileg fantasía sem gaman er ađ gleyma sér yfir, svipuđ og The Princess Bride. Fín.
***1/2 (af fimm mögulegum)
Nauđsynlegt bjórmagn: Ekki fleiri en einn

-Jón Grétar