KISS meets the Phantom of the Park [***1/2] (til í Laugarásvideo)
Lengd: ca 96 min
Litmynd
Leikstjóri: Gordon Hessler
Aðalhlutverk: Peter Criss .... Cat Man
Ace Frehley .... Space Ace
Gene Simmons .... The Demon
Paul Stanley (II) .... Star Child
Anthony Zerbe .... Abner Devereaux
Carmine Caridi .... Calvin Richards
Deborah Ryan .... Melissa
Ef þetta er ekki cult mynd þá veit ég ekki hvað. KISS eru að spila í skemmtigarði og brjálaður vísindamaður er að klóna fólk í brúður (nei, ég er ekki að grínast) og ætlar að komast yfir leyniorkugripi KISS til að geta klónað þá líka.
Þetta er með verri myndum sem ég hef séð! En ég skemmti mér líka allan tíman! Lélegar brellur, verri leikur og plott sem er svo asnalegt að það er eins og það hafi verið skrifað af þroskaheftum fjögurra ára einstaklingi gera þessa mynd algert cult favorit. Ástæðan fyrir því að myndin er ekki í b-mynda listanum er náttúrulega sú að KISS eru cult fyrirbæri útaf fyrir sig, með óteljandi aðdáendur sem gleypa ALLT sem þeir gera hvort sem það eru bíómyndir, diskar, comix, leikföng, eða nestisbox. Og allir erum við fanatískir og trúum á mátt KISS!! Úpps, talaði af mér.
En í alvöru talað, þá er þetta mynd sem er möst á öll b-mynda kvöld hvort sem þú ert KISS fan eða ekki.
***1/2 (af fimm mögulegum)
Nauðsynlegt bjórmagn: 5-6 (nema KISS fan, þeir þurfa bara 2-3)
-Jón Grétar
|
|
|
|