|
Kapteinninn [***½] (fáanleg í Laugarásvideo)
Mynd eftir: Snorra B. Jónsson og Árna Árnason
Er á videospólunni Cult 2
Þetta er grínmynd um ofboðslega sjálfumglaðan flugstjóra sem finnst hann vera
mesti töffari í heiminum. (Reyndar er kannski ekkert óalgengt að flugstjórar hafi
gott álit á starfi sínu).
Þessi mynd er þegar orðin hálfgert legend innan flugmannastéttarinnar, en er ekki
síður drepfyndin fyrir fólk utan stéttarinnar. Þarna fylgjumst við með einum vinnudegi
hjá Kapteininum, þar sem hann er að springa úr töffaraskap, reyna við flugfreyjuna og gera
lítið úr aðstoðarflugmanninum allan daginn. Þetta er líka frekar vönduð mynd með flottum
tökum.
| |
 |
-Rökkvi
|
|
|
|