Judge Dredd [***1/2] (til í Laugarásvideo)
Lengd: ca 95 min
Litmynd
Leikstjóri: Danny Cannon
Aðalhlutverk: Sylvester Stallone .... Judge Dredd
Diane Lane .... Judge Hershey
Armand Assante .... Rico
Rob Schneider .... Herman Ferguson (Fergie)
Jürgen Prochnow .... Judge Griffin
Max von Sydow .... Chief Justice Fargo
Hver man ekki eftir þessari mynd? Allir sögðu að hún væri svo vond að maður ætti að sleppa því að sjá hana. En ég er stoltur að segja að ég sá hana í bíó! Sly hérna í fullum skrúða plaffandi vonda kalla með ofur byssunni sinni og með línur sem eru bara klipptar út úr comix. Þetta gerist í framtíðinni þar sem ekki eru til löggur lengur, bara dómarar sem handtaka, dæma og ef þarf, framkvæma refsingar. Æði!
Plottið er þunnt, Dredd er sakaður um að hafa myrt fréttamann og er sendur í fangelsi í fanganýlenduna Aspen. En hann náttúrulega sleppur og brýst aftur inn í MEGA CITIE og nær fram hefndum.
Þetta er ein af þessum Hollywood b-myndum sem við höfum fengið að sjá á undanförnum árum. Sumar eru bara vondar, sama hvað maður reynir (The Island of Dr. Moroue) en sumar eru bara sillí og fyndnar vegna þess hvað þær sjúga FEITAN Holmes (Battlefield Earth, Postman). Judge Dredd fer í seinni hópinn. Hvernig er hægt að hata mynd þar sem Sly segir með fýlusvip "I am the Law". Gargandi æði!
***1/2 (af fimm mögulegum)
Nauðsynlegt bjórmagn: 3-4
-Jón Grétar
|
|
|
|