Hopla på sengekanten [***] (til í Laugarásvideo)
Ole Söltoft leikur hér vinnufíkil sem ekkert gagnast konunni sinni. Ole
á nefnilega stórt klóakshreinsunarfyrirtæki sem á í basli gegn harðri
samkeppni.
Nýi markaðsstjórinn hans Ole vill að þeir sjái viðskiptavinum
fyrirtækisins fyrir
fylgdardömum til að fá þá til að skrifa undir samninga. Ole fellst
loksins á það
með miklum trega. Vandamálið er hins vegar að kynsvelt konan hans Ole er
leynilega farin að
vinna fyrir fygdarþjónustuna sem markaðsstjórinn verslar við.
Þetta
er mjög
týpísk sengekanten mynd (semsagt mjög góð) full af dönskum húmor og
hallærislegheitum.
Þetta er ekki raunverulega klámmynd, eins og sumar sengekanten myndirnar,
heldur meira
í ljósbláa kantinum.
-Rökkvi
|
|
|
|